157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:21]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst aðeins um sóknaráætlanir. Ég er sammála hv. þingmanni og til þess að rifja upp söguna þá hafði sá sem hér stendur frumkvæði að því að lögfesta sóknaráætlanir og hafði frumkvæði að því að snarauka fjárframlög til þeirra og fá fleiri ráðuneyti að því verki. Ég er mikill stuðningsmaður sóknaráætlana. Þarna fá sóknaráætlanir auðvitað verkefni en ef þær fá ekki fjármuni í samræmi þá er ekki nóg að fá verkefni — ef það eina sem maður þarf að gera er að láta starfsmann fara í gegnum fullt af tillögum og segja síðan nei. Ekki er verið að styrkja sóknaráætlanir ef það er gert með þeim hætti. Þarna eru verkefni sem eru landsdekkandi en hvaða landshluti á að sjá um þau? Hvernig á að skipta þessu á milli landshluta? Það er dálítið flókið ef þetta er bara gert á einhverjum nefndarfundi í fjárlaganefnd, satt best að segja.

Varðandi tillögur okkar þá sagði hv. þingmaður að eins og allir vissu væri svigrúmið ekki neitt. Í alvöru, hv. þingmaður, er svigrúmið ekki neitt? Hví jukuð þið útgjöldin um 143 milljarða? Það er ykkar ákvörðun að þessar stofnanir eigi bara að fá 700 milljónir, jafnvel þótt þær þyrftu 1.200 eða 1.500 milljónir. Við getum ekki, ofan á þetta mikla álit okkar þar sem við erum að fara í grunninn, formið og markmiðin, farið í hvern einasta fjárveitingalið og sagt hvað væri rétt og hvað væri rangt. Við komum með nokkrar stefnumarkandi tillögur. Segjum að það vanti sirka milljarð inn í heilbrigðiskerfið. Ég er á þeirri skoðun að þar muni vera gerð nokkur hróp að heilbrigðisráðuneytinu á næsta ári: Hjálp, við getum ekki rekið Reykjalund, við getum ekki rekið Heilsustofnunina í Hveragerði, við getum ekki rekið Ljósið öðruvísi en það komi meira fjármagn. (Forseti hringir.) Það er á ábyrgð meiri hluta fjárlaganefndar og ríkisstjórnarinnar.