157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[16:23]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Það er ánægjulegt að fá loksins tækifæri til að fjalla örlítið um fjárlagafrumvarpið sem var lagt fram hér í haust og þótt það hafi tafist nokkuð í meðförum þingsins, einhverra hluta vegna seinkaði þessari umræða, þá er það loksins komið hingað. Þó verð ég að gera athugasemdir við það að meginforsenda fjárlaga í umræðunum er alla jafna frumvarp sem er lagt fram samhliða fjárlögunum sem eru breytingar á ýmsum lögum um tekjur og gjöld ríkisins, hinn svokallaði bandormur sem hefur verið lagður tvívegis fram hér, strax í september samhliða fjárlagafrumvarpinu en einnig síðar, hinn seinni bandormur. Það er svolítið bagalegt að hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefur ekki náð að skila þeim málum af sér, reyndar er nýkomið fram nefndarálit í fyrri bandorminum og málið afgreitt út úr nefnd, þannig að það liggur fyrir hvernig meiri hlutinn ætlar að haga þeim sköttum og þeim gjöldum sem þar er fjallað um. Í þeim bandormi, ef ég man rétt, er lögð til veruleg breyting og ég held að það sé nánast fordæmalaust að það komi inn svo veruleg breyting að hún varði 7,5 milljarða kr. hækkun á sköttum. Bandormur hinn seinni situr hins vegar enn fastur í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og það hefur ekki verið útskýrt af hverju það er. En þar eru líka lagðar til verulegar breytingar á tekjuhlið ríkissjóðs sem hefði verið gott að lægju hér frammi við þessa umræðu. Það er allt að einu hægt að ræða þessi mál, þessar stóru strokur í þessu fjárlagafrumvarpi, en menn komast ekki hjá því í þessari umræðu að ræða líka tekjuhliðina þegar verið er að ræða um útgjöldin.

Það liggur fyrir, eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, að efnahagslegar forsendur fjárlagafrumvarpsins hafa breyst. Það minnir mann nú kannski á og ætti að vera öllum áminning um hversu kvik ríkisfjármálin eru og þjóðarbúskapurinn. Menn halda stundum að menn geti séð mjög langt fram í tímann og við hér á Alþingi höfum sett reglur og lög um fjármálaáætlanir og lög um opinber fjármál, fjármálaáætlanir sem eiga að gilda í fjögur til fimm ár. Ráðuneytum er líka uppálagt að gera jafnvel spár eða a.m.k. leggja niður sviðsmyndir til 30 ára. Það er því auðvitað ekki heppilegt þegar forsendur fjárlagafrumvarpa breytast svo að það kalli á verulegar breytingar á því frumvarpi sem alla jafna er lagt fram hér á haustin. En það hefur sem sagt gerst og í kjölfar nýrrar þjóðhagsspár Hagstofu Íslands, sem var birt 14. júní og nefnd er hér í nefndaráliti, var það metið svo að breytingar á tekjuhlið fjárlaga, sem meiri hlutinn leggur til, byggist á endurmati ráðuneytisins í kjölfar þessarar spár. Menn hafa verið að nefna það hér og ég ætla ekki að gera það nema bara til að bóka það að frumvarpið sjálft gerði ráð fyrir neikvæðri afkomu um 15 milljarða og að heildartekjurnar samkvæmt frumvarpinu verði 170 milljörðum kr. hærri frá fjárlögum yfirstandandi árs og að heildargjöldin hafi verið áætluð í frumvarpinu, eins og það var lagt fram í haust, 1.600 milljarðar. Það er veruleg hækkun, 5,4% raunaukning heildargjalda. Það út af fyrir sig hefði átt að vekja menn til umhugsunar strax í september þegar þessi mikla hækkun á heildargjöldum ríkissjóðs liggur fyrir alveg óháð því að þjóðhagsspá Hagstofu Íslands kemur út með reglulegum hætti eins og menn vita. En mér finnst menn svolítið hafa verið að skýla sér á bak við þessa nýju þjóðhagsspá og varpa fram nýjum breyttum forsendum til að auka á tekjuhliðina með þessum bandormum sem ég nefndi hér sem hafa hins vegar ekki komið hér til afgreiðslu og ekki nema annar þeirra afgreiddur út úr nefnd.

Stöðugleikareglan hefur verið nokkuð til umfjöllunar. Ég skal ekki meta það hér og nú en það mun auðvitað koma í ljós hvort hún heldur eftir þær breytingar sem gerðar verða á fjárlagafrumvarpinu og á sköttum og gjöldum. En menn nefna það, og ég tel að það ætti að vera umhugsunarefni líka, að svo geti farið að þessi ríkisstjórn brjóti á þessari stöðugleikareglu sem hún sjálf setti sér. En allt eru þetta kannski að einhverju leyti einhverjar bókhaldsæfingar sem ég ætla ekki að fara mjög djúpt ofan í.

Í frumvarpinu var gert ráð fyrir 2,6% hagvexti en núna eftir þinglega meðferð og þessar breyttu forsendur er gert ráð fyrir 1,8% hagvexti á næsta ári. Burt séð frá þessari spá sérstaklega, þ.e. þessum 1,8% hagvexti sem menn spá á næsta ári, þá er þessi mikla breyting sem verður á nokkrum vikum áhyggjuefni. Það er áhyggjuefni ef menn standa frammi fyrir svo breyttum forsendum á nokkrum vikum að það kalli fram breytingu á frumvarpinu við þinglega meðferð. En ástæðan fyrir þessum breyttu forsendum og þessari breyttu spá um hagvöxt, og ég fagna því að það er nefnt hér í nefndaráliti meiri hlutans, a.m.k. áttar meiri hlutinn sig á því og viðurkennir það, eru erfiðleikar í atvinnulífi og minni útflutningur. Í rauninni er ekki gert ráð fyrir neinum vexti í útflutningi á næsta ári. Það er út af fyrir sig áhyggjuefni og mér finnst lítið ef nokkuð fara fyrir umfjöllun um þetta atriði sérstaklega í nefndaráliti meiri hlutans og kannski líka í máli þeirra örfáu þingmanna ríkisstjórnarflokkanna sem hafa tekið hér til máls. En það er kannski kjarni málsins, og ég fagna því að ríkisstjórnarflokkarnir átti sig á því, að það eru erfiðleikar í atvinnulífi. Þess vegna kemur það manni því mun meira á óvart, í ljósi þess að menn átta sig á þessu, að það sé haldið áfram að vega að atvinnulífinu og jafnvel með þessum breytingum sem verið er að gera á fjárlögum og einkum og sér í lagi auðvitað með bandormunum tveimur sem verður fjallað um hér síðar, þ.e. með hækkun á sköttum og gjöldum ofan á þær hækkanir sem ríkisstjórninni tókst að knýja fram á þeim örstutta tíma sem hún hefur þó setið, hækkanir á sköttum á atvinnulífið. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um það en hækkun veiðigjaldanna er kannski stærsta dæmið um það sem við höfum frá síðasta þingi sem menn mátu sem svo, ríkisstjórnarflokkarnir, að mætti engan tíma missa að hrinda í framkvæmd. Ríkisstjórnarflokkarnir voru kannski ekki einu sinni komnir inn í málin í sínum ráðuneytum og þá var þetta það sem mest lá á. Afleiðingin kemur fram í þessu nefndaráliti, að það eru erfiðleikar í atvinnulífi og útflutningur að minnka. Útflutningur tekur að sjálfsögðu líka til ferðaþjónustunnar en menn skelltu algerlega skollaeyrum við ábendingum og viðvörunarorðum þeirra þingmanna sem ræddu dagana langa um þessa hækkun veiðigjalda í sumar. Lítið var gert úr þeim viðvörunarorðum sem voru höfð uppi en á einhverjum tímapunkti hljóta menn að þurfa að horfast í augu við þá staðreynd að það eru ákveðin sársaukamörk þegar kemur að skattlagningu á fyrirtæki, einstaklinga og heimili. Menn þurfa að meta það kirfilega ef menn ætla að hækka álögur á fyrirtæki og heimili en ekki ana út í slíkar aðgerðir af því að það hentar í einhverri pólitískri umræðu hér á götum úti. En aftur, þá fagna ég því að menn átti sig á þessu.

Ég hef merkt við ýmislegt í þessu nefndaráliti meiri hlutans sem að mínu mati er vert að draga fram eða sem ég a.m.k. staldra við. Ég fagna líka umfjölluninni hérna, pælingum meiri hlutans um hagvaxtarspár. Það er alveg réttmætt að mínu mati sem er sett fram í þessu nefndaráliti að gangi þessi spá um hagvöxt eftir er útlit fyrir að meðalhagvöxtur á árunum 2024–2026 verði einungis 0,8%. Það er bent á það í nefndaráliti meiri hlutans að meðalhagvöxtur áranna 2021–2023 hafi verið 6,4%. Ég get alveg tekið undir með einhverjum hv. þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna sem hafa bent á það, jafnvel hæstv. forsætisráðherra líka, að hagvöxtur á þessum árum, 2021–2023, hafi kannski verið drifinn af óefnislegum þáttum að einhverju leyti, þ.e. með miklum innflutningi á fólki en kannski minni verðmætasköpun. Það er þó ekki þannig að hægt sé að líta alfarið fram hjá þeim hagvexti sem var á þessum tíma. En það liggur fyrir, og mér finnst ég greina það í nefndarálitinu, að höfundar þess átti sig á því að í farvatninu sé mikil kólnun í efnahagslífinu. Það vekur þess vegna undrun að ekki skuli vera fjallað nánar um það og til hvaða aðgerða menn vilji grípa til að koma í veg fyrir að slík kólnun verði ekki að hræðilega klístraðri stöðnun sem getur vel orðið haldi menn ekki vel á spilunum.

Svo er vísað til þess, og ég vil gera smáathugasemdir við það, í nefndaráliti meiri hlutans að Hagstofan hafi bent á að hægst hafi á fólksfjölguninni sem menn sjá ofsjónum yfir þegar kemur að tali um hagvöxt. En þegar kemur að tali um útlendinga almennt þá fagna menn mjög þeim vexti. Hér er nefnt að eftirspurnin eftir vinnuafli hafi minnkað en svo er gert ráð fyrir að það séu ýmsir óvissuþættir í efnahagsspánni samkvæmt Hagstofunni og þeir séu einkum þessir: spenna í alþjóðasamskiptum og stríðsátök, alþjóðlegar efnahagshorfur og viðskiptastríð. Þetta er talið sem helstu óvissuþættirnir. Ég nefni þetta nú bara af því að mér finnst það hálfkaldhæðnislegt, þegar menn tala um að það megi ekki halla neinu orði á útlönd eða útlendinga, að þegar kemur að efnahagsmálunum þá stafi ógnin helst utan frá, af spennu í alþjóðasamskiptum og stríðsátökum. Svo er verðlagsþróunin líka nefnd og náttúruhamfarir á Reykjanesi sem ég vona reyndar að við séum komin fyrir horn með og sé ekki eins mikil óvissa um. Ég tel reyndar að sú fullyrðing standist trauðla að náttúruhamfarir á Reykjanesi gefi tilefni til að telja að það sé óvissuástand í efnahagsmálum sérstaklega. Ég held að við eigum að geta gert okkur grein fyrir hvað þær, verði þær áframhaldandi, hafa í för með sér. Ég geri hins vegar athugasemdir við það að þessir þættir séu þeir einu sem séu helstu óvissuþættir í efnahagsspánni. Ég held að við verðum að vera raunsærri en svo og viðurkenna það að helstu óvissuþættir í efnahagsmálum erum við sjálf, eru stjórnvöld á hverjum tíma. Ætli það sé ekki oftast þannig í flestum stórum málum að maður er kannski sjálfur sinn versti óvinur og þegar kemur að efnahagsmálum þá er ábyrgð stjórnvalda á hverjum tíma mjög mikil og þau geta ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð með því að vísa til óvissuþátta í útlöndum, stríðsátaka einhvers staðar fjarri eða viðskiptastríðs annarra landa nema náttúrlega þeirra landa eða ríkjabandalaga sem ætla sér að hefja viðskiptastríð við Ísland, að sjálfsögðu. Ég tek undir að það er ákveðin óvissa sem hefði neikvæð áhrif hér en fyrst og fremst felst óvissan hér á Íslandi, og hefur gert um langt skeið, í óstöðugleika í stjórnarfari og stjórnmálum, handahófskenndum aðgerðum og ákvörðunum þegar kemur að skattlagningu, þegar kemur að stefnumörkun fyrir atvinnulífið og þess háttar þáttum.

Ég hef, eins og fleiri þingmenn sem hér hafa talað í dag, miklar áhyggjur af vaxandi ríkisútgjöldum. Ég hef sérstaklega áhyggjur af þeirri þróun sem hefur verið, einkum frá árinu 2019, á skuldum ríkissjóðs sem hafa vaxið langt umfram það sem sjálfbært getur talist hjá ríki eins og Íslandi, þar sem skuldirnar eru orðnar þannig að fjármagnskostnaðurinn eða vaxtagjöldin af skuldunum eru orðin einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs, bara vaxtagjöldin eru stærri en rekstur á Landspítalanum eða Háskóla Íslands eða Vegagerðinni, sem er nú uppáhaldsríkisstofnunin meðal þingmanna þegar verið er að ræða fjárlagafrumvarpið. Þá gnæfa vaxtagjöldin langt yfir kostnaði við þessar grundvallarstofnanir, grundvallarstoðir hér á landi. Það er ekkert í fjárlagafrumvarpinu sem bendir til þess að skuldirnar fari lækkandi og ekki heldur að eitthvað dragi úr skuldaaukningunni. Kannski eitthvað aðeins en það er ekkert sem bendir til þess að menn hafi tekið einhverja markvissa ákvörðun um að hætta að safna skuldum, hvað þá að borga þessar skuldir niður. Þvert á móti er fjárlagafrumvarpið, eins og það kemur eftir þinglega meðferð til 2. umræðu, til þess fallið að það verði áframhaldandi skuldasöfnun með þessum vaxandi útgjöldum.

Það eru auðvitað margir liðir sem hægt er að nefna hér varðandi útgjaldaaukninguna en auðvitað er ríkisbáknið heilt yfir að þenjast út. Menn þekkja þessa umræðu, starfsmönnum hjá hinu opinbera fjölgar alltaf, vinnutími þeirra styttist og styttist svo að menn ná sums staðar að mæta í vinnuna til þess rétt að skella í lás á eftir sér. Þetta er þróun sem er fyrir löngu orðin þannig að hún er ekki sjálfbær. Það er ekki hægt að reka ríkissjóð með þessum hætti. Svo eru náttúrlega mál hér í gangi sem kannski eru ekki nefnd í fjárlagafrumvarpinu sem slíku en eru stórir útgjaldaliðir; frumvörp frá ríkisstjórninni sem hafa fengið þinglega meðferð og eru undir þinglegri meðferð og kalla á veruleg útgjöld. Ég get nefnt nokkur. Margir þingmenn hafa farið hér yfir ýmsa liði. Umfjöllun mín markast helst af því að ég sit í hv. velferðarnefnd og hef fengið sýn á stefnu ríkisstjórnarinnar í nokkrum útgjaldamálum. Inn í hv. velferðarnefnd koma einir þyngstu útgjaldaliðir ríkisins, eins og öll velferðarþjónustan og allt bótakerfið sem tekur mjög í pyngjuna hjá ríkissjóði. Þegar ég nefni það að ég sjái þess ekki stað í þessu fjárlagafrumvarpi að þessari skuldasöfnun muni linna því að útgjaldavöxturinn er svo mikill, þá er ég líka að hugsa til þessara mála sem hafa t.d. verið að koma inn á vettvangi velferðarmálanna sem eru samt einhvern veginn tilviljanakennd mál, mál sem virðist hafa verið hent inn á þingið til þess að deila út peningum algjörlega ómarkvisst. Það hefur komið fram við þinglega meðferð þessara mála af hálfu umsagnaraðila, nánast allra umsagnaraðila, þó ekki þeirra umsagnaraðila sem koma frá þeim sem eiga að fá peninginn, að það vanti einhverja sýn og einhverja forgangsröðun þegar kemur að útdeilingu skattfjár til þessara mála; það eru allir sammála um það. Ég nefni málið sem hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra leggur fram sem felur í sér að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu. Þetta er frumvarp sem hefur verið verðlagt á 10–12 milljarða á tímabili fjármálaáætlunar, að það kosti svona 4–6 milljarða á ári. Það eitt og sér er náttúrlega slæmt, algert stílbrot við stjórn efnahagsmála vegna þess að þetta felur í sér algjöra sjálfvirknivæðingu bótakerfa, sjálfvirknivæðingu ríkisútgjalda og það er bara ofboðslega vond efnahagsstjórn. Hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra leggur það fram með blessun hæstv. fjármálaráðherra. En hæstv. fjármálaráðherra hefur sjálfur sagt það í sínu fyrra lífi, áður en hann tók sæti sem ráðherra, að þetta væri vond aðgerð, að það væri vont að stilla ríkisútgjöldum upp með þessum hætti. Þetta er alveg furðuleg nálgun í ríkisfjármálum.

Ég vil líka nefna eitt mál sem ég veit að meiri hlutinn hér á þingi leggur mikla áherslu á að afgreiða nú í desember þótt það sé ekkert sem kalli endilega á það. Þetta er ekki svokallað dagsetningarmál, þetta er ekki mál sem þarf að samþykkja í tengslum við fjárlagafrumvarpið. Þetta er furðulegt mál, eitt af þessum furðumálum sem rekur hingað inn og það er aftur frá sama ráðherra, hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, mál um að tiltekið fólk, aldraðir, öryrkjar og þeir sem þiggja endurhæfingarlífeyri, eigi að fá eingreiðslu, skattfrjálsa eingreiðslu, upp á 73.390 kr. Það liggur fyrir að kostnaðurinn af þessu er 2 milljarðar og því er haldið fram í frumvarpinu að þetta sé fé sem menn hafi eyrnamerkt og þetta er blessað af hæstv. fjármálaráðherra; að þetta eigi að vera eingreiðsla og kosti 2 milljarða. Þegar maður kafar ofan í þetta mál — menn gætu haldið að þetta væri desemberuppbót af því að lögð er áhersla á að þetta verði samþykkt núna í desember en það er ekki svo. Ég hef meira að segja heyrt að sumir hv. þingmenn haldi að þetta sé svokölluð desemberuppbót sem bótaþegar og þeir sem þiggja framfærslustyrk með einhverjum hætti fá samkvæmt öðrum lögum, í almannatryggingalögum. Það er ekki um það að ræða. Þetta er bara sérstök greiðsla upp á 73.390 kr. Þegar menn skoða þetta mál nánar þá kemur í ljós að þetta er gömul Covid-aðgerð. Þetta er aðgerð frá tímum heimsfaraldursins, aðgerð sem þáverandi ríkisstjórn réðst í árið 2022 í eitt skipti. Þáverandi ríkisstjórn réðst í það á Covid-tímanum að gefa út ferðaávísanir til allra landsmanna svo að fólk gæti hlýtt Víði sem nú situr á þingi, er hv. þingmaður, og ferðast innan lands. Það voru gefnar út ávísanir. Virðulegur forseti, það er ekki annað hægt en að hlæja að þessu. Ég veit ekki hvernig fólkinu sem ákvað þetta leið en það var gefin út ferðaávísun. Það var reyndar hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir sem situr líka á þingi, hún var þá ráðherra, sem ákvað að gefa út ferðaávísun þannig að fólk gæti ferðast innan lands. Þetta var, eins og einhver benti á, ekki upp í nös á ketti. Ég meina, menn eru náttúrlega aldrei ánægðir en menn bentu á að þetta væri ekki þannig fjárhæð að menn gætu raunverulega ferðast innan lands eins og verðlag á Íslandi væri. Menn hefðu kannski getað ferðast einhvers staðar, ég veit það ekki, í Svartfjallalandi ef menn hefðu þá fengið flugið frítt eða eitthvað svoleiðis. Menn fengu þessa ferðaávísun og það var bent á það að t.d. öryrkjar gætu ekki ferðast innan lands fyrir þennan pening. Þá brá ríkisstjórnin á það ráð að gefa öryrkjum pening til þess að þeir gætu ferðast fyrir peninginn sem þeim var gefinn sérstaklega til að ferðast. Þetta var nú öll viskan á þessum Covid-tíma. Á þeim tíma man ég að einhverjir bentu á að vírusinn, sem menn óttuðust svo svakalega að þeir fóru í fósturstellingu heima hjá sér í nokkur ár, hefði mögulega lagst á heilann á fólki og að þessar aðgerðir gætu rennt stoðum undir þá kenningu. En þetta var sem sagt aðgerð sem var farið í þá, hv. velferðarnefnd lagði á sínum tíma til þessa eingreiðslu til öryrkja svo að þeir gætu ferðast fyrir ferðaávísunina. Ári síðar var ferðaávísun ekki gefin út aftur en hv. velferðarnefnd leið svo vel með þessa ákvörðun, að hafa gefið öryrkjum smápening, 70.000 kr. skattfrjálst, að hv. velferðarnefnd ákvað að gera það bara aftur ári síðar. Og árið þar á eftir, ja, þá voru að koma kosningar og þá hvarflaði auðvitað ekki að nokkrum manni að hætta að gefa öryrkjum þennan pening sem einu sinni var til að geta nýtt ferðaávísunina en var núna bara sérstök gjöf til öryrkja, skattfrjáls. Og af því að það voru kosningar fannst hv. þingmönnum upplagt að bæta öldruðum líka inn í þessa ferðaávísun, þannig að aldraðir fengju líka pening.

Nú er svo komið að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra unir því ekki að hv. velferðarnefnd sé að gefa á garðann með þessum hætti, heldur hefur tekið málið til sín og búið til sérstakt frumvarp um þessa eingreiðslu sem kveður á um einskiptisgreiðslu, ekki til framtíðar, með bráðabirgðaákvæði í tilteknum lögum um að þessi eingreiðsla haldi áfram. Og nú er svo komið, ég veit að hv. þingmenn trúa mér ekki þegar ég segi þeim þetta, að meiri hluti þeirra sem fá þessa eingreiðslu sem ríkisstjórnin frá fyrra kjörtímabili fann upp á til að öryrkjar gætu ferðast fyrir ferðaávísunina, að meiri hluti þeirra sem fá eingreiðsluna eru aldraðir, ekki öryrkjar heldur aldraðir. Aldraðir fá þetta og aðrir með einhverjum skerðingum. Og hvernig skyldi sú skerðing vera fundin út? Það er miðað við það að það séu 2 milljarðar sem eru til ráðstöfunar og það var bara fundin einhver skerðingarregla. Það var náttúrlega byrjað að skerða þannig að þeir sem byggju í útlöndum fengju þetta ekki, hvorki öryrkjar né aldraðir sem búa í útlöndum, svo fá aldraðir sem eru með tekjur yfir 100.000 kr. þetta ekki heldur. Það gerir það þá að aldraðir sem eru með 400.000 kr. í ráðstöfunartekjur, kannski stóreignafólk, býr í skuldlausu húsi, fá þennan pening, skuldlausar 73.390 kr., skattfrjálst, öryrkjar líka og svo stétt þeirra sem eru í hinum nýja flokki sem heitir starfsendurhæfingarlífeyrisþegar.

Þetta er allt með miklum ólíkindum, virðulegur forseti. Ríkisstjórn sem segist vera í aðhaldi, segist bera hag atvinnulífsins fyrir brjósti, horfist í augu við það miðað við nefndarálitið að atvinnulífið er í vanda og að það verði minnkandi hagvöxtur, leggur síðan til svona aðgerð sem er verið að afgreiða hér til hliðar við þetta fjárlagafrumvarp, kostnað upp á 2 milljarða. Á sama tíma gerir fjárlagafrumvarpið ráð fyrir því að samsköttun hjóna, sem hefur verið við lýði síðan marglaga tekjuskattsþrepskerfið var tekið upp, og er auðvitað nauðsynlegt að gera þegar menn hafa mörg skattþrep, að mæta fjölskyldum með þeim hætti sem gert hefur verið með samsköttunina, er felld niður. Hvað skyldi það hafa kostað, eins og ríkisstjórnin segir? Ríkisstjórnin heldur því fram að ríkissjóður hafi orðið af 2,5 milljörðum kr. vegna samsköttunar hjóna, vegna samsköttunar sem nýtist því fólki sem mögulega hefur lágar fjölskyldutekjur, þeim fjölskyldum þar sem annar aðilinn getur ekki til lengri eða skemmri tíma verið á vinnumarkaði. Ríkisstjórnin hefur bent á að þetta sé svo fámennur hópur, þetta séu aðallega karlar í Garðabæ og á Seltjarnarnesi. Ekkert er fjarri lagi. Það er kannski fámennur hópur á hverjum tíma en fólkið sem hefur nýtt þessa samsköttun kemur úr öllum kimum okkar þjóðfélags; ungt fólk, eldra fólk, miðaldra fólk sem dettur út af vinnumarkaði tímabundið, fólk sem á langveik börn, fólk sem á börn eða aldraða ættingja sem það þarf að sinna og þar fram eftir götunum. Það eru því mjög margir, ef ekki allir á vinnumarkaði, flest fullorðið fólk sem komið er til vits og ára, sem hafa nýtt þetta úrræði eftir að skattþrepunum var fjölgað.

Við erum að horfa fram á það, virðulegur forseti, að þessi ríkisstjórn ákveður að kippa að þessu leyti fótunum undan ungu fólki sem er á vinnumarkaði, með fjölskyldur, með því að kippa úr sambandi samsköttuninni en ætla á sama tíma að deila fé, 73.390 kr., samtals 2 milljörðum, nánast sama fjárhæð og samsköttunin kostar, til aldraðs stóreignafólks t.d., í úrræði sem var hannað fyrir öryrkja. Ég hef ekki séð neinn þingmann, af þeim þingmönnum sem hafa verið að berja sér á brjóst við lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, fólkið og þingmennina sem hafa flaggað því að þeir séu sérstakir talsmenn fatlaðra hér á þingi, koma hingað upp og benda á það hvernig þetta úrræði, sem var hannað fyrir öryrkja, er nú orðið að einhverju greiðslukerfi fyrir aldrað fólk. Hvar er þetta fólk? Ég er hins vegar ekki að halda því fram að það sé ekki góð ráðstöfun að eyða 2 milljörðum í eingreiðslu til aldraðra eða öryrkja — það er annað kerfi sem á að grípa öryrkja — en það væri svo sannarlega hægt að nota þessa fjármuni, þessa 2 milljarða, í þágu öryrkja eða fatlaðra með betri hætti en með þessari eingreiðslu sem hæstv. ríkisstjórn, einkum hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra, leggur áherslu á að taki gildi í desember af því að þá þurfi fólk að gera vel við sig. Það eru rökin. Það er það sem hefur verið sagt hér, að menn þurfi að gera vel við sig í desember og þá er algerlega litið fram hjá desemberuppbótinni sem er til þess fallin að vera í þessu kerfi.

Ég geri ekki athugasemdir, virðulegur forseti, við þessi dellumál Flokks fólks hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og öll þau dellumál sem Flokkur fólksins kemur með og rennir í gegnum þingið. Ég býst ekki við neinu öðru af hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra eins og hún hefur talað hér sem almennur þingmaður og vegna þess hvernig hún og hennar flokkur gengu fram í kosningabaráttunni. Ég býst ekki við neinu öðru en þessari dellu af hálfu þessa fólks. Ábyrgðin er hins vegar á hæstv. fjármálaráðherra sem viðurkennir delluna. Hann viðurkennir hvers lags rugl þetta mál er og þessi mál öll sem koma frá samstarfsflokknum en lætur þetta viðgangast. Ég átta mig alveg á því, eins og allir hér, að það eru auðvitað málamiðlanir í ríkisstjórnarsamstarfi en þetta er óábyrgt í hæsta máta. Svo að ég nefni aftur hér, af því að ég er með það fyrir framan mig, sjálfvirknivæðinguna á bótakerfinu og almannatryggingakerfinu, tengingu við launavísitölu, þá hefur ekki verið gerð á því nein greining, sem ber að gera, hvernig ráðuneyti fjármála myndi meta það til 30 ára, nái þetta fram að ganga.

Virðulegur forseti. Ég hef ekki náð að fara yfir nema lítið brot af þessu, þetta eru svona nokkrar hugsanir mínar. Hins vegar hef ég komið á framfæri nokkrum hugsunum sem laust í huga mér þegar ég var að lesa og fylgjast með þessari umræðu hér um fjárlagafrumvarpið. Ég á enn mikið inni í þessu og sé til hvort ég komi fleiri hugsunum mínum hér á framfæri, a.m.k. í síðasta lagi við 3. umræðu.