157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[17:33]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir síðara andsvar sitt. Ég hef held ég ekki hingað til sjálfur kallað þetta einhver sérstök hægri fjárlög og ég ætla bara að viðurkenna það að þetta eru ekki hægri fjárlög sérstaklega. (BHar: Vinstri ríkisstjórn, vinstri fjárlög.) Ég ætla ekki að taka undir heldur að þetta séu vinstri fjárlög. Eins og ég kom inn á í minni ræðu þá erum við — jú, útgjöldin eru að aukast en allt hagkerfið er á fleygiferð. Hlutfall ríkisins, bæði tekjur og útgjöld sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, er nokkurn veginn að standa í stað og mun minnka á tímabili fjármálaáætlunar. Báknið, eitt orð sem við notum mjög gjarnan hér, er að standa í stað. Myndi ég vilja sjá það minnka milli ára, núna frá 2025–2026? Að sjálfsögðu. En það mun minnka á tímabili fjármálaáætlunar. Við munum ná að stöðva hallareksturinn, stöðva skuldasöfnunina og draga úr vaxtabyrði ríkissjóðs og minnka báknið.