fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu þar sem hann fór af þekkingu yfir þetta frumvarp. Það er áhugavert að fylgjast með því að það er enginn stjórnarliði í salnum, frekar en í dag. Einhvern tímann hefði maður nú ætlað, ef stjórnarliðar væru stoltir af sínum verkum, að þeir kæmu hér og myndu leiðrétta það sem fram kemur hjá stjórnarandstöðunni. En þeir hafa ekki getað gert það þótt þeir hafi tekið þátt í umræðunni og nú eru þeir búnir að gefast upp á að taka þátt í umræðunni. Ég er mjög sammála því, þó að það sé lítið mál, sem kom fram hjá hv. þingmanni varðandi Akstursíþróttasamband Íslands og ætla ekki að endurtaka það.
Eina athugasemdin sem ég hef við þessa ræðu er að mér fannst hv. þingmaður gleyma smáskattahækkunum þegar hann vísaði í að þær verði 28 milljarðar. Því að eftir að frumvarpið var lagt fram kom húsnæðispakki sem var frekar sérkennilegur. Skemmtilegur blaðamannafundur og allt það en það voru umbúðir, ekki um það að hjálpa fólki að eignast húsnæði, heldur fyrir 2,3 milljarða skattahækkun sem mun hækka leigu í landinu. Það sem kom síðan í kjölfarið var þetta frumvarp um hækkun á erfðafjárskatti, sem ekki hefur verið kynnt sem hækkun en er það augljóslega. Það hefur hvergi komið fram. Hæstv. ríkisstjórn heldur því fram að hækkun á erfðafjárskatti, sem hv. þingmaður fór aðeins inn á, milli umræðna tengist þessu ekki heldur hafi það verið einhver uppreikningur. Ég hef áhyggjur af því, virðulegi forseti, að þessi mikla hækkun sem mun koma á erfðafjárskattinn, ef þau klára þetta frumvarp, sé eitthvað sem eigi hugsanlega að koma til móts við tekjufallið sem hv. þingmaður vísaði til út af vörugjöldunum. Ég vildi spyrja hvaða skoðun hv. þingmaður hefur á þeirri kenningu.