157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:32]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Stefán Vagn Stefánsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Auðvitað er þetta hækkun, virðulegur forseti. Það blasir við. En það sem mér finnst svo merkilegt við þetta sérstaka dæmi, eins og við hv. þingmaður höfum verið að benda á hér í ræðum síðustu daga, er að það er okkar mat að tekjur séu ofmetnar inni í frumvarpinu. Hæstv. ríkisstjórnin leitar logandi ljósi að öllum matarholum til þess að geta hækkað tekjurnar í fjárlagafrumvarpinu til að ná upp í núllið í stöðugleikareglunum. Mér finnst það verulega sérstakt að ekki hafi verið settur verðmiði á þessa aðgerð. Það er mjög skrýtið, virðulegur forseti, að í allri þessari leit að fjármagni, til þess að reyna að koma til móts við þessa 143 milljarða sem búið er að hækka um, þá skyldi hæstv. ríkisstjórn ekki setja verðmiða á þetta. Ég skil ekki af hverju, nema þau hafi verið hrædd við umræðuna sem þau fengju frá landsbyggðinni, frá bændum og Bændasamtökunum. Það er augljóst að menn eru að fara að höggva verulega í þar og ættliðaskipti í landbúnaði, sem við erum búin að ræða hér árum saman um hvað séu erfið og flókin og þurfi að einfalda — þetta er ekki að fara að hjálpa, virðulegur forseti, alls ekki. Þetta fer í þveröfuga átt. Ég held að það sé eina skýringin sem alla vega ég kemst að, þegar ég hugsa um þetta, er að menn hafi ekki þorað því. Þrátt fyrir að hafa verið að leita logandi ljósi að öllum krónum og aurum þorðu menn ekki að eyrnamerkja peninga þessari hækkun þannig að menn yrðu ekki teknir á beinið fyrir það.