fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Ég átti frænda þegar ég var lítill og hann hafði þann háttinn á að hann spurði spurninga og svaraði þeim alltaf sjálfur. Ég hefði eiginlega getað sleppt því að koma hér upp vegna þess að hv. þingmaður svaraði spurningunni í restina og ég er alveg sammála honum. Þetta hefur engin áhrif, í raun og veru. Í raun og veru geta menn bara komið fram og sagt: Því miður voru horfur verri en við gerðum ráð fyrir. En það er alveg ljóst, og það segir berum orðum í lögum um opinber fjármál, að við eigum að hafa áætlunargerðina eins nákvæma og eftir bestu gögnum og kostur er. Þegar þú veist að vörugjöldin munu ekki ná 7,5 milljörðum, vegna þess að það er búið að selja hér gríðarlegan fjölda af bílum á árinu 2025, sem munu ekki verða seldir 2026 og þar af leiðandi ekki bera vörugjöld, þá ertu ekki að fara eftir því. Þú ert með rangar tölur inni. Tilfinningin sem ég er með, og ég hef verið að koma því hingað inn og miklu fleiri, er sú að það sé verið að reyna að fegra þetta frumvarp og koma því þannig fyrir að við komumst í gegnum umræðuna og menn geti staðið í þessu púlti og sagt: Jú, auðvitað erum við að standast stöðugleikaregluna sem við sjálf settum. Auðvitað erum við að því, við erum reyndar mjög tæp en við erum réttum megin. Ef forsendurnar í frumvarpinu væru réttar, að mínu mati, værum við ekki að standast regluna.
Af því að hv. þingmaður spurði um viðurlögin við að brjóta regluna: Við munum eftir umræðunni hér síðasta vor þar sem við vorum að ræða um það hvort fjármálaáætlunin stæðist lög um opinber fjármál. Það var okkar mat að svo væri ekki. Þá komu fulltrúar meiri hlutans upp og sögðu: Eruð þið að saka okkur um lögbrot? Við erum ekkert að brjóta regluna, við erum bara ekki alveg að fara eftir henni.