157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Við erum hér að ræða fjárlögin og það hefur verið gott í þessari umræðu að búið er að draga stóru myndina ágætlega fram. Hún er einfaldlega sú að þau kosningaloforð sem voru gefin af hálfu ríkisstjórnarflokkanna fyrir síðustu kosningar eru svikin. Við fórum að sjá, áður en fjárlögin voru lögð fram, að menn fóru á svig við og brutu lög um opinber fjármál. Það hljómar tæknilega en er gríðarlega alvarlegt vegna þess að við erum að færa verklag í kringum opinber fjármál áratugi aftur í tímann. Lög um opinber fjármál voru samin eftir mikinn undirbúning, tíu ára undirbúning, með það að markmiði að við værum að vinna þessi mál í samræmi við það sem best gerist í öðrum löndum. Hv. fjárlaganefnd, sem kláraði þetta, og ég var aðili að, fór m.a. til Svíþjóðar til að setjast niður með þingmönnum og embættismönnum þar til þess að læra af því hvað hefði gengið vel og hvað bæri að varast. Um þetta hefur verið þverpólitísk sátt þar til þessi ríkisstjórn tók við og menn ákváðu að láta eins og þessi lög væru ekki til. Menn komu hér með fjármálastefnu og fjármálaáætlun saman sem gerði það að verkum að við gátum ekkert rætt þau mál sem á að ræða undir fjármálastefnu. Þetta er saga sem við þekkjum. Einhver kynni að halda að þetta væri fyrst og fremst tæknilegt atriði en það sem gerist, þegar menn bera ekki virðingu fyrir verklaginu og fara ekki eftir lögunum, er að það mun með einhverjum hætti koma niður á þjóðinni. Við sjáum núna — kannski vegna þess að við ræddum þetta ekki, ég veit það ekki. Ef menn hefðu farið eftir lögunum og við hefðum rætt stóru myndina í vor, eins og lög gera ráð fyrir, hefði kannski verið meiri pressa á ríkisstjórnina að koma með ábyrgari fjárlög, koma með aðhaldssamari fjárlög, koma með fjárlög sem fælu ekki í sér þessar miklu skattahækkanir, koma með fjárlög sem væru hallalaus. Við erum með kjöraðstæður til að koma með hallalaus fjárlög þetta haustið vegna þess að þær forsendur sem gert var ráð fyrir í síðustu fjárlögum reyndust vera betri. Síðasta ríkisstjórn skilur eftir sig mjög gott bú. Hvort sem við lítum til skuldastöðu, til ýmissa málaflokka sem voru dýrir, og þá er ég að vísa í Covid og jarðhræringar á Reykjanesi, hefur kúfurinn verið tekinn. Eins er verk að vinna varðandi útlendingamálin, það er búið að rjúfa kyrrstöðuna í orkumálunum og sömuleiðis búum við nú, sem er að hjálpa okkur, við nýsköpunarumhverfi sem hefur tekið stakkaskiptum og gerir það að verkum að höggið verður miklu mýkra þegar við verðum fyrir áföllum í atvinnugreinum sem hefur fram til þessa reynst okkur mjög dýrkeypt að verða fyrir áföllum í. Það er því algjör áfellisdómur fyrir þessa hæstv. ríkisstjórn að koma fram með fjárlögin eins og þau eru núna.

Eins og fram hefur komið, og það er mjög mikilvægt að það komi vel fram og allir séu meðvitaðir um það, þá eru útgjöldin að aukast um 143 milljarða á milli fjárlaga. Til samanburðar á kosningaári, á síðasta ári, jukust þau um 70 milljarða. Og við erum að sjá þessar miklu skattahækkanir og sömuleiðis mikið virðingarleysi gagnvart þingi og þjóð. Menn eru hér að koma á elleftu stundu með skattahækkanir sem eru ekki kynntar sem skattahækkanir en allir sjá að eru skattahækkanir þegar menn skoða það. Ég er hér sérstaklega að vísa til erfðafjárskattsins. Ég myndi, með leyfi forseta, vilja fá að lesa hér upp úr umsögn Deloitte Legal um frumvarpið sem tekur á forsendum erfðafjárskattsins. Þessi umsögn er afskaplega vel úr garði gerð. Hún tekur ágætlega saman helstu atriðin á fyrstu síðunni undir I. kafla sem heitir „Samantekt“. Þar segir, með leyfi forseta:

„Fyrirhugaðar breytingar samkvæmt b-lið 11. gr. frumvarpsins um mat á löndum og jörðum til „markaðsverðs“ geta falið í sér verulega hækkun erfðafjárskatts fyrir erfingja íslenskra bænda, án þess að raunveruleg verðmæti eða fjármagn sé til staðar til að greiða skattinn.“

Þegar við erum að tala hér um verulega hækkun þá þýðir það að þetta geta þess vegna verið tugir milljóna sem fæstir eiga á bankabók til að greiða skattyfirvöldum. Áfram er haldið:

„Fyrirhugaðar breytingar skv. c-lið 11. gr. frumvarpsins um hækkun á skattstofni óskráðra félaga fela í sér gróft frávik frá almennum meginreglum skatta og félagaréttar sem gilt hafa um árabil.“

„Breytingarnar fela í sér talsverða hækkun á erfðafjárskatti.“

„Breytingarnar gætu skapað talsverða óvissu um skattalega meðferð vegna annarra skatta þar sem byggt hefur verið á sömu meginreglu.“

„Tillagan er gölluð að því leyti að ekki er tekið tillit til tekjuskattsskuldbindinga sem hvíla á sjálfum félögunum.“

„Tillagan mun leiða til óskýrleika í framkvæmd því nú er lagt í hendur sýslumanns og skattyfirvalda að meta hvenær um sé að ræða „óverulegan“ mismun á bókfærðu verðmæti samkvæmt ársreikningum og markaðsvirði eigna.“

„Líkur eru á að sama eign yrði tvískattlögð í kjölfar yfirfærslu eignar vegna arftöku.“

„Líkur eru á að erfingjar þurfi að leggja út í kostnað við öflun verðmats eða sérfræðiaðstoðar til að verðmeta óskráð félög.“

„Allar líkur eru á því að erfingjar þar sem arfláti var minni hluta hluthafi fái ekki nauðsynlegan aðgang að bókhaldi eða eignum viðkomandi félaga til að láta verðmeta eignir þess.“

„Samhliða innleiðingu 12. gr. frumvarpsins um tímamörk endurákvörðunar Skattsins ætti að taka til sérstakrar skoðunar að innleiða þröngar undanþágureglur í erfðafjárskattslögin til að bregðast við tilvikum þar sem mat við viðmið laganna leiðir til óeðlilegrar niðurstöðu.“

Virðulegi forseti. Þetta eru stór orð og það er, held ég, einsdæmi að ríkisstjórn komi fram með skattahækkunarfrumvarp án þess að segja frá því. Það getur enginn haldið því fram að hér sé um óviljaverk að ræða eða að hæstv. ráðherrar hafi ekki verið meðvitaðir um hvað þarna er á ferðinni. Ef svo væri þá væri ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að hér hafi verið um mistök að ræða og frumvarpið yrði dregið til baka. En svo er ekki. Þó svo að nokkrir stjórnarliðar hafi sagt, og eðlilega, að þeir hafi áhyggjur af þessu, og jafnvel hæstv. ráðherra líka, þá bólar ekkert á neinum yfirlýsingum um að menn ætli að draga þær hugmyndir sem fram koma í frumvarpinu, sem eru vanhugsaðar og gallaðar, til baka.

Virðulegi forseti. Við erum bara á þessum stað. Ég tek erfðafjárskattsmálið út af ástæðu. Ekki vegna þess að það sé eina málið sem við höfum áhyggjur af. Ég mun koma betur að öðrum málum í öðrum ræðum, það er því miður af nógu að taka. Ég tek þetta út vegna þess að mér finnst það gríðarlega alvarlegt að hækka skatta — og þessi erfðafjárskattur er mjög umdeildur, einfaldlega vegna þess að það er búið að greiða skatta af öllum þeim eignum sem erfast. Í ofanálag þá er það nú svo að þegar eignir eins og jarðir eða félög erfast milli kynslóða þá þýðir það ekki að viðkomandi erfingi eigi einhverjar milljónir eða tugi milljóna á bankabók til að greiða fyrir það að fá arfinn sinn. Af þessu hefur fólk miklar áhyggjur og það er ekki að ósekju.

Virðulegi forseti. Þetta er ekki síðasta ræðan sem ég held um þetta mikilvæga mál og ég vonast til þess að við förum að ræða þessi mál á dýptina. Það væri ekki verra ef einhver stjórnarliði væri hér til svara og myndi taka þátt í umræðunni.