157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[19:01]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Karl Gauti Hjaltason) (M):

Frú forseti. Ég ætlaði að koma að nokkrum atriðum til viðbótar í minni fyrri ræðu um fjárlög, þessi fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar. Ég ætlaði að byrja á því að árétta og ítreka það sem ég hef áður sagt með útgjöld. Ríkisfjármálin eru tvíþætt, þ.e. tekjur sem eru í formi skatta og útgjöld sem ríkið þarf að standa straum af til að halda uppi þjónustu og þjónustu ríkisins og rekstri hins opinbera. Þetta er einfalt, bara tekjur og útgjöld. Ríkisstjórnin einbeitir sér að mínu mati að tekjuhliðinni, þ.e. að hækka skatta. 2. minni hluti fjárlaganefndar telur að það sé ekki nógu mikil einbeiting á útgjaldahlið ríkisfjármála. Vandinn er fólginn í útgjaldahlið ríkisfjármálanna, að stemma stigu við sívaxandi útgjöldum ríkisins. Það er vandamálið, frú forseti, það er ekki verið að stemma stigu við útgjöldum ríkisins. Hvað sem menn segja um stöðugleikareglu og ætlaðan sparnað og aðhald þá sér þess lítil merki, ég leyfi mér að segja að það séu lítil merki um það. Útgjaldaaukningin er hátt í 150 milljarðar á milli ára. Það er útgjaldaaukningin og að teknu tilliti til verðbreytinga og verðhækkana á raunvirði eitthvað lægri þannig að útgjaldaaukning fjárlaga er allt of mikil, frú forseti.

Miðflokkurinn hefur bent á leiðir til að taka á útgjöldunum og ég fór yfir það í minni fyrri ræðu. Við höfum lagt áherslu á þrjá þætti í ríkisfjármálunum, þrjá meginþætti. Ég hef líkt þessu við lagnakerfi. Af því að ég þekki einhverja pípulagningamenn þá líkti ég því við að það væri leki í lögnunum og það eru þrír stórir lekar, það míglekur á þremur stöðum. Það þarf að gera við þessa leka, stoppa þá. Fyrst og fremst er lekinn fólginn í ríkisrekstrinum, bákninu eins og það er oft er kallað, þ.e. Stjórnarráðinu og stofnunum ríkisins. Þetta er stanslaust, áratugum saman, frú forseti, það er ekki nýtt, það er ekki þessi ríkisstjórn sem á sök á því, það er bara búið að viðgangast hér á Íslandi í áratugi að kerfið vex og vex og tekur alltaf meira og meira af skatttekjunum. Sá hluti vinnandi fólks sem vinnur hjá ríkinu og hinu opinbera vex alltaf ár frá ári. Hversu lengi getur það gengið, frú forseti?

Við teljum að það ætti að taka upp reglur og við leggjum til — og það er ekkert nýtt, það er ekki Miðflokkurinn sem finnur upp á því, en við leggjum til að það verði stopp, nýráðningar og endurráðningar í ríkisgeiranum verði stöðvaðar um 50%. Við segjum 50%. Við áttum okkur á því að í minni stofnunum og í sumum störfum þá þarf að ráða aftur ef einhver hættir. En ef þessi regla yrði tekin upp þá myndi það mjög fljótt, frú forseti, bera árangur vegna þess að í stofnunum er starfsmannavelta alltaf stöðug og töluverð þannig að það myndi sjást árangur strax á næsta ári ef þetta yrði tekið upp strax. Þeir vita það sem fylgjast með auglýsingum hjá Stjórnarráðinu og í Morgunblaðinu og þeim miðlum sem haldið er úti að það er á blaðsíðu eftir blaðsíðu, dag eftir dag, verið að auglýsa eftir fólki til starfa í ríkisgeiranum. Er þetta allt nauðsynlegt, frú forseti? Nei, ég held að það sé hægt að taka á þessu. Ég held að það sé hægt að spara þarna, draga aðeins úr þessu, setja einhvers konar reglu, 50% reglu, og það myndi fljótt bera árangur.

Ég ætlaði að tala um forsendur fyrir þessu fjárlagafrumvarpi sem mér finnst einkennast af barnalegri, eigum við ekki að segja það, bjartsýni á þessum tímum. Það er raunverulega, frú forseti, gert ráð fyrir því að allt gangi eins vel og hægt er. Við vitum, frú forseti, að sumar ríkisstjórnir sem hafa verið hér við völd undanfarna áratugi hafa stundum náð að bjarga sér vegna þess að atvinnulíf í landinu blómgast miklu hraðar en gert var ráð fyrir, en við getum ekki búist við því, sérstaklega ekki núna þegar fjöldamörg merki eru um það, og búið er að benda á það hér í fjölda ræðna, að atvinnulífið eigi undir högg að sækja á mjög mörgum sviðum. Ég vil nefna t.d. iðnaðinn; Bakki á Húsavík, Norðurál, Elkem, skattahækkanir á kísiljárni og bilun í katli upp á Grundartanga þannig að þar eru áföll. Er tekið tillit til þeirra að fullu? Nei, menn eru bara bjartsýnir á að þetta muni allt ganga mjög vel. Það gæti gerst. Þetta gæti hugsanlega gengið bara ágætlega, en menn eru alltaf með bjartsýnustu spána.

Ferðaþjónustan, frú forseti, hverjar eru horfur í ferðaþjónustu? Menn gera ráð fyrir því að þetta haldi áfram óbreytt, allt gangi bara prýðilega. Þeir aðilar sem hafa komið fyrir hv. fjárlaganefnd hafa hins vegar miklar áhyggjur, ekki bara vegna aukinna skatta á bifreiðar, sem er auðvitað einn mjög stór þáttur í forsendum fjárlaga, heldur einnig vegna þess að það eru merki um það, t.d. í Bandaríkjunum, að slaki gæti komið í ferðamannastraum frá Ameríku hingað til lands, það gæti fækkað ferðamönnum þaðan. Álagning kílómetragjalds og álagning vörugjalda á verð bílaleigubifreiða gæti haft áhrif á neyslu og eyðslu og ferðir ferðamanna og jafnvel komur ferðamanna ef þeir sjá að verð á bílaleigubifreiðum fari hækkandi á Íslandi. Er þetta tekið inn í forsendur fjárlaga? Nei, eins og áður vona menn auðvitað að þetta fari allt afskaplega vel og helst eins og best verður á kosið.

Hafa menn áhyggjur af sjávarútvegi? Ég hef það og ekki bara vegna þess að lagt er á nýtt veiðigjald á sjávarútveginn, ekki bara vegna þess, frú forseti, heldur einnig vegna minnkandi kvóta í þorski, minnkandi veiði á makríl, minnkandi veiði á kolmunna þannig að ég hef áhyggjur af því að útflutningstekjur í sjávarútvegi muni dragast saman. Og þá er ég ekki búinn að nefna loðnuveiði. Það hefur engin loðnuveiði verið síðustu tvö ár og horfur á veiði núna eftir áramót eru fátæklegar, við skulum orða það þannig. Sér þess merki í fjárlagafrumvarpinu? Nei, menn gera bara ráð fyrir að allt fari á besta veg, allt fari bara ágætlega. Við skulum vona það, sannarlega.

Hafa menn tekið með í reikninginn áhrif af skattahækkununum í sjálfu sér? Ef þú hækkar skatta, sérstaklega skatta sem eru háir nú þegar, hafa skattþegar tilhneigingu til að draga saman seglin, minnka sína vinnu eða sýna iðju þannig að skattstofninn minnkar miðað við þær áætlanir sem þú heldur að þú fáir með hækkun á skattinum. Það er bara eðlilegt, svipað og þegar þú ert að veiða fisk í lítilli tjörn, þú ert vön að veiða tíu fiska, svo allt í einu þarftu meiri fisk og þú ætlar að veiða 20 eða 30, þá kemur að því að þú nærð ekki að veiða það. Það kemur einn daginn að því að þú nærð ekki þessu magni vegna þess að fiskurinn er einfaldlega þurrausinn, það er bara þurrausið. Eins og ég hef stundum sagt: Skattgreiðendur eru ekki óþrjótandi auðlind, frú forseti. Þeir eru það ekki.

Allar þessar forsendur sem ég hef farið hér yfir — ríkisstjórnin, fjárlaganefnd og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra gera í raun ráð fyrir því að þetta fari allt saman eins og best verður á kosið, allt saman. Það er þetta sem ég geri athugasemdir við. Útkoman úr reikniformúlunni er sú að reglan sem þau ekki mega brjóta, svokölluð stöðugleikaregla, hangir á hnífsoddi. Það munar kannski einhverjum milljónum eða einhverjum hundraðþúsundköllum á því að menn brjóti hana eða brjóti hana ekki, að gefnum forsendum sem eru að mínu mati fullbjartsýnar. Ég hef stundum sagt að mér er nokk sama þótt stöðugleikareglan sé brotin. Það gerist ekki neitt, það stöðvast ekki neitt, það lokar engum stofnunum. En ég vil auðvitað herma það upp á stjórnvöld ef þau ætla að brjóta eigin reglur, ef þau brjóta reglur sem þau hafa sjálf sett sér þá geri ég að sjálfsögðu athugasemdir við það og hef gaman af. Meðan þau engjast í því að reyna að halda sig við reglurnar þá, eins og einhver orðaði það, fáum við okkur popp og kók og fylgjumst með. Ég held nefnilega að hún sé brotin en við fáum kannski engin svör við því eða niðurstöðu um það vegna þess að þau stjórna því hvernig þau reikna forsendurnar.

Ég ætla aðeins að fara yfir, ég hef enn þá tíma, skattahækkanirnar. Ríkisstjórnin er að hækka skatta um hátt í 30 milljarða. Ég ætla aðeins að fara stuttlega, frú forseti, yfir það. Ég er kannski búinn að fara í sumt af þessu en ég ætla að nefna nokkur atriði í viðbót. Ég byrja bara á erfðafjárskattinum. Með breyttum forsendum til fjárlaganefndar var það útskýrt að erfðafjárskatturinn myndi hækka um 2,1 milljarð vegna þess að menn höfðu reiknað það út eitthvað vitlaust. Þetta breyttist á milli septembermánaðar og nóvembermánaðar. Á tveggja mánaða tímabili tóku menn eftir því að erfðafjárskatturinn ætti að vera hærri. Hvernig menn komust að þeirri niðurstöðu var mér hulið þrátt fyrir að ég læsi forsendur frá fjármálaráðuneytinu. Ég sá raunverulega ekki hvaða forsendur væru fyrir því að þetta myndi hækka um 2,1 milljarð. Ég hélt, frú forseti, að andlát væru bara einhver fasti gegnum tímabil, færi ekki eftir neinum lögmálum en það væri nokkurn veginn jafnræði á milli ára með einhverjum smábreytingum vegna aldurs þjóðarinnar í heild. En þeir voru sem sagt einhvern tímann í október búnir að komast að því og reikna það út að þessi skattur myndi hækka um 2,1 milljarð og þetta átti hv. fjárlaganefnd að kaupa, að þetta myndi gerast sisvona. Þarna væri ekki um skattahækkun að ræða heldur væri þetta bara forsendubreyting og ný útreikningsaðferð eða eitthvað slíkt. Látum það vera, e.t.v. er hækkun á þessum forsendum til þess að hækka tekjur ríkissjóðs einmitt til þess að hæstv. ríkisstjórn myndi ekki brjóta stöðugleikaregluna.

Síðan gerist það, frú forseti, að það birtist frumvarp í efnahags- og viðskiptanefnd, svokallaður bandormur. Þar voru nokkrar breytingar á erfðafjárlögum og af því að ég þekki þau lög svolítið, hef unnið eilítið með þau í mínu fyrra lífi, þá tók ég eftir því að menn voru með fyrirætlanir um að það ætti að breyta útreikningi á stofni erfðafjárskatts. Það hefur verið miðað við fasteignamat í þeim tilvikum þar sem það liggur fyrir, þ.e. þegar um fasteignir er að ræða, jarðir og hús og íbúðir og fleira slíkt. En nú ætti samkvæmt þessum breytingum sem eru í frumvarpinu ekki að miða lengur við fasteignamat vegna þess að sett er heimild í lögin um að þegar um land er að ræða, land sem getur verið jörð eða sumarbústaðaland eða eitthvað slíkt líklega, þá væri hægt að fara í það að meta verðgildið. Reyndar sleppi ég hér ýmsu öðru eins og hlutabréfum og verðbréfum og einhverju slíku, ég ætla nú bara að fjalla um þetta. En hvað gerist, frú forseti, ef jörð gengur að erfðum og þetta frumvarp nær að ganga í gegn? Margar jarðir eru náttúrlega metnar frekar lágt vegna þess að þar er stundaður bara hefðbundinn búskapur, sauðfjárbúskapur sem gefur ekki mikið af sér og byggingar kannski orðnar gamlar og úr sér gengnar þannig að fasteignamatsverð er kannski ekki mjög hátt. En svo taka menn upp á því eftir áramót að meta þessar jarðir. Hvað kemur þá til skoðunar, frú forseti? Þá kemur það til skoðunar sem menn hafa svo hátt um í dag. Hvað er ég þá að meina? Ég er að meina t.d. nýtingu jarða fyrir vindmyllur. Það er mjög vinsælt. Það er búið að skipuleggja vindmyllugarða á flestum heiðum og hæðum um landið þvert og endilangt og það eykur sjálfsagt verðgildi og kaupgetu og kaupvilja þeirra sem vilja fjárfesta í slíku. Nú, veiði, veiðijarðir eru eftirsóttar og keyptar upp oft á tíðum af erlendum auðmönnum. Þá má nefna svona aðdráttarafl fyrir ferðamenn, ef það finnst nú á jörðinni kannski einhver klettur eða foss eða eitthvað til að sýna ferðamönnum þá væri hægt að fara að rukka þar inn. Það myndi auka verðgildi jarðarinnar. Og ef einhver foss er nú þarna, eins og ég nefndi, þá vill kannski einhver virkja hann og selja inn á landsnetið. Menn eru að því í dag. Ef það er einhver veiði þarna, einhver laxveiði, þá eykur það verðgildi. Þannig að þessi jörð, þessi sauðfjárjörð sem er að ganga að erfðum, er kannski ekki lengur 50 millj. kr. virði eins og hún er í fasteignamati heldur gæti hún hugsanlega verið metin á 500 millj. kr. eða 1.000 millj. kr., eftir því hvaða möguleika hún gæti hugsanlega gefið. Hvernig fer þá fyrir bændasyninum sem vill halda áfram búskap á þessari jörð og var að erfa jörðina ásamt systkinum sínum, sem nógu erfitt er í dag að kaupa? Erfingjarnir þyrftu fyrst að greiða 10% erfðafjárskatt að fráteknu einhverju smáræði í afslátt sem er, að ég held, 6,5 millj. kr. í dag. En þessar 1.000 millj. kr. myndu þá þýða hátt í 100 millj. kr. í erfðafjárskatt, 100 milljónir. Hver myndi standa undir því sem ætlar að fara að reka sauðfjárbúskap? Slíkt myndi útrýma, frú forseti, hefðbundnum venjulegum búskap á Íslandi á fáum árum. Það yrðu engin kynslóðaskipti.

Ég tel þetta frumvarp til breytinga á erfðafjárskatti hið versta mál. Ég heyrði á hv. þm. Ingvari Þóroddssyni sem svaraði mér í andsvari hér fyrr í dag að hann væri mér sammála um að það yrði einhvern veginn að laga þetta eða jafnvel að falla alveg frá þessum breytingum. Ég er auðvitað ánægður að heyra það. Hann sagðist nú einnig vera aukaleikari en við skulum vona að þetta berist til eyrna þeirra sem eru aðalleikarar í þessari ríkisstjórn.

Einnig má finna í þessu frumvarpi, frú forseti, breytingar á endurskoðun á uppgjöri erfðafjárskatts. Í dag er það þannig að þegar þú gerir upp erfðafjárskatt, greiðir hann og skilar skýrslu, þá hefur ríkisskattstjóri 40 daga til að gera athugasemdir og hugsanlega breyta matinu eða laga það, sem er í sjálfu sér mjög gott vegna þess að erfingjar eru auðvitað sundurleitur hópur oft á tíðum og fer hver í sína áttina eftir að erfðum lýkur. En þarna er gert ráð fyrir að það sé hægt að endurskoða þetta eins og aðra skattstofna í sex ár. Í sex ár, frú forseti. Sjáið þið fyrir ykkur stöðuna í einhverjum systkinahópnum sem er farinn og tvístraður um allt eftir að búið er að ljúka skiptum? Fólk farið til útlanda, einhver kannski látinn, einhver kannski orðinn blankur. Sjáið útlitið ef allt í einu kemur aukarukkun frá ríkisskattstjóra sex árum seinna, með tilliti til þess, frú forseti, að þau eru samábyrg fyrir greiðslu skattsins, samábyrg. Það gæti einn staðið uppi með þessa endurálagningu, einn erfingi, sex árum seinna. Það er auðvitað ekkert vit í þessu, frú forseti. Ég skil bara ekkert í því hvernig ráðuneyti kemst upp með að lauma svona ólögum inn í frumvarp sem hingað er komið. Ég vona innilega, það er bara algjört réttlætismál og sanngirnismál, að þetta verði sent aftur til föðurhúsanna eins og kannski mætti orða það.

Ég ætlaði að ræða aðeins um fjármagnstekjuskattinn, skatt á leigutekjur. Það er afsláttur sem fólk hefur fengið, fólk sem er að standa í því að leigja út íbúðir hefur ekki þurft að borga 22% fjármagnstekjuskatt heldur er gefinn 50% afsláttur af því, þ.e. viðkomandi þarf að borga 11% af þessum tekjum í fjármagnstekjuskatt. Hann fær afslátt. Af hverju, frú forseti? Vegna þess að það er gert ráð fyrir því, sem eðlilegt er, að viðkomandi sem ekki er í rekstri hafi einhvern kostnað af því að leigja þetta út. Það þarf að kaupa sængurfatnað og laga og gera við og sinna ýmsu ef hann er að leigja út íbúðina, hann þarf að kosta viðhald ef eitthvað kemur upp á, svona venjulegt viðhald. Hann hefur ýmsan kostnað sem hann getur ekki fært á rekstur vegna þess að hann er ekki í rekstri. Þess vegna er sagt: Allt í lagi, það er eðlilegt að hann fái 50% afslátt af þessu. Ella myndi hann koma með kvittanir og sýna fram á ýmsan kostnað en honum er sparað sú fyrirhöfn og Skattinum er líka spöruð sú fyrirhöfn að fara yfir þetta. Menn hafa sæst á það einhvern tímann að hafa 50% afslátt af þessu. Nú ætlar ríkisstjórnin, vinstri ríkisstjórnin, að lækka þetta um helming, hækka skattinn um 50%, þ.e. ekki gefa 50% afslátt af fjármagnstekjuskattinum heldur einungis 25% afslátt. Niðurstaðan er sú að af þessum tekjum greiðir þú 16,5% skatt. Hverjir skyldu borga þetta? Leigjendurnir. Leigjendurnir borga þetta, viðkomandi aðilar munu hækka leiguna. Er það augljóst? Já, frú forseti, það er augljóst. Hverjir eru þetta sem verið er að vaða ofan í vasana hjá? Hverjir skyldu það vera? Ég held að mjög margir í þessum hópi sé ungt fólk, frú forseti, sem er að leigja íbúð sem það er að kaupa, býr kannski hjá foreldrum eða býr í hluta húsnæðisins og eru að leigja hluta húsnæðisins út til að greiða niður lánin til að geta eignast íbúðina. Það er þannig í mjög mörgum tilvikum. Þarna er verið að gera unga fólkinu erfiðara fyrir. Eru þetta auðjöfrarnir sem verið er að ná í? Nei, þetta fólk er ekki í atvinnurekstri. Ein íbúð.

Það er víða seilst ofan í vasana, frú forseti. Krumlur ríkisvaldsins, krumlur ríkisstjórnarinnar eru komnar ofan í alla vasa, líka hjá ungu fólki sem er að reyna að greiða niður lán á sinni fyrstu íbúð. Sorglegt, frú forseti, sorglegt.

Fleiri skattahækkanir. Ríkisstjórnin ætlar að ná sér í tekjur upp á 2,8 milljarða á því að fella niður möguleika hjóna og sambúðarfólks að nýta persónuafslátt þess aðila sem lægri tekjur hefur í þágu þess sem hærri tekjur hefur, til afsláttar af skatti. 2,8 milljarðar. Og hvaða fólk er þetta, frú forseti? Hvaða fólk er þetta? Eru þetta auðjöfrarnir? Nei, þetta er kannski fólk sem er að sinna langveiku barni heima hjá sér, kannski fólk sem minnkar vinnu vegna þess að það er að sinna öldruðum foreldrum, kannski fólk sem er atvinnulaust tímabundið, kannski fólk þar sem annar aðilinn er að vinna á sjó eða langt frá heimili og hefur góðar tekjur meðan hinn sinnir fjölskyldu, börnum og búi og er með minni vinnu. Þetta eru samlegðaráhrif hjónabandsins sem menn hafa nú talað fjálglega um að væri æskilegt í okkar samfélagi. Fjölskyldan. Þarna er verið að vega að henni, grunneiningu þjóðfélagsins, fjölskyldunni, 2,8 milljarðar eru lagðir á þetta fólk. Eru þetta auðjöfrarnir? Nei, þetta er venjulegt fólk.

Ég er því miður að klára minn tíma, en ég ætla að nefna aðeins samgönguáætlun, rétt síðustu sekúndurnar. Ríkisstjórnin kynnti sína samgönguáætlun. Mér sýnist hún vera áætlun um samgöngubætur sem kemur í verk næstu ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Þetta eru verkefni sem eiga að gerast eftir þetta kjörtímabil.