157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:08]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir innblásna og ágæta ræðu. Ég vil sérstaklega hæla hv. þingmanni fyrir það. Hann er annar hv. þm. Sjálfstæðisflokksins, í það minnsta, sem stígur í þessa pontu í þessari umræðu um fjárlögin, tekur á kassann og gengst við þeim mistökum sem síðasta ríkisstjórn gerði varðandi innviðagjöldin. Hann hvatti núverandi ríkisstjórn til að ganga þá vegferð ekki áfram þrátt fyrir örlitlar lækkanir á þeim álögum. Ég held að það sé rétt hjá hv. þingmanni að það eru öll teikn á lofti þess efnis að Jóhönnustjórnin sé upprisin, illu heilli. En mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann vék stuttlega í máli sínu að hagræðingartillögunum sem ríkisstjórnin auglýsti eftir og fékk sjálfsagt nálægt 10.000 tillögur: Hvað varð um þessar tillögur? Við vitum reyndar að ríkisstjórnin hefur gefið það út að nokkur fjöldi þessara tillagna hafi hreinlega verið of pólitískur til að hægt væri að nota þær. Of pólitískur til að hægt væri að nota þær, hv. þingmaður. Hvað er forgangsröðun í fjárlögum annað en pólitík? Er þetta eitthvert leikrit? Ekki það að ég geti ætlast til þess að hv. þingmaður svari því. Óneitanlega lítur þetta þó þannig út því þú getur ekki ætlast til þess að fá sparnaðartillögur og reikna svo með því að þær krefjist ekki pólitískrar afstöðu. Því spyr ég hv. þingmann: Hvað varð um þessar tillögur og hvernig er hægt að forgangsraða í fjárlögum ríkisstjórna öðruvísi en að sú forgangsröðun sé pólitísk?