157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[20:13]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir skemmtilegt svar. Ég ætla aðeins lengra með þetta. Þegar verið er að skýla sér á bak við það að sumar tillögur hafi ekki verið nothæfar vegna þess að þær hafi verið of pólitískar, sem er náttúrlega eitthvert mesta dellusvar sem boðið hefur verið upp á í þessari umræðu, þá er eðlilegt að spyrja, í ljósi samtals okkar hv. þm. Jens Garðars Helgasonar um innviðagjald á skemmtiferðaskipin sem núna hefur verið lækkað í 1.600 kr.; fyrri tillaga var 2.000 úr 2.500 en endar í 1.600: Telur hv. þingmaður að þarna sé nógu langt gengið eða er ekki skaðinn skeður? Hefði ekki núna þurft að senda skýr skilaboð út í atvinnulífið til þessara félaga sem eru að selja sínar ferðir eitt ár, jafnvel tvö ár fram í tímann? Það hefði verið hægt að senda þau skilaboð: Heyrðu, við gerðum mistök, við drögum þau til baka. Allar frekari bollaleggingar um slíka skattlagningu, verði hún og komi hún til framkvæmda, verða gerðar með a.m.k. tveggja til þriggja ára fyrirvara.

Að öðru leyti vil ég bara segja, frú forseti: Það er auðvitað margt sem ég hefði getað spurt hv. þingmann út í. Mig langaði að fara í fjármagnstekjuskattinn, breytingar á samsköttun hjóna, veiðigjaldið og erfðafjárskattinn. Svona mætti áfram telja. Það er búið að finna upp alveg ótrúlega fjölbreyttar aðferðir til að teygja sig í vasana. Mig langar hins vegar, af því hv. þingmaður var skemmtilegur í sínu andsvari, að reyna að vera svolítið skemmtilegur líka og segja í lokin, frú forseti: Þessi tónn sem var í ræðunni gleður mig mikið því hann gefur til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn, í réttum félagsskap, leiddur fram götuna, sé bara líklegur til talsverðra afreka.