157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[22:28]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það hefur verið hreyfing á mælendaskránni en ég kemst nú í aðra ræðu mína um fjárlagafrumvarpið og ætla í þessari ræðu að beina sjónum mínum að landsbyggðinni og áhrifum frumvarpsins á landsbyggðina. Menn hafa töluvert rætt um samgöngur, sérstaklega undanfarna daga, í framhaldi af kynningu hæstv. innviðaráðherra á samgönguáætlun, eða drögum að samgönguáætlun því enn á þingið eftir að fjalla um þá þingsályktunartillögu. Það er mikilvægt að hafa það í huga að þar er ekkert fast í hendi. Þingið ræður þessu á endanum. Auðvitað getur maður ekki annað en sett áformin sem þar voru kynnt í samhengi við það sem hér er til umfjöllunar, fjárlögin og það hvernig ríkisstjórnin sýnir á spilin, a.m.k. fyrir næsta ár, í samgöngumálunum. Þar er það helst að frétta að til stendur að auka enn álögur á almenning vegna samgangna og þær álögur munu hlutfallslega bitna verst á landsbyggðinni. Það á við um kílómetragjaldið svokallaða sem eðli máls samkvæmt leggst þyngra á þá sem þurfa að fara um langan veg til að komast á milli staða og hafa síður aðgang að öðrum samgöngukostum. Jafnframt eru íbúar landsbyggðarinnar líklegri til að reiða sig á hefðbundin ökutæki, þ.e. þau sem nýta hefðbundið eldsneyti, og það eykur enn á kostnaðinn fyrir íbúa landsbyggðarinnar.

Áformuð hækkun vörugjalda, hin gríðarmikla hækkun upp á 7,5 milljarða, bitnar svo líka sérstaklega þungt á landsbyggðinni, m.a. á ferðaþjónustu á landsbyggðinni, því að með þessari hækkun er ljóst að það verður mun dýrara að taka bílaleigubíl á Íslandi og var það þó mjög dýrt fyrir. Nú verður það enn þá dýrara og dregur þá væntanlega, og í raun örugglega, úr ferðum ferðamanna um landið á eigin vegum á bílaleigubílum. Hver er afleiðingin af því? Minni dreifing ferðamanna um landið gengur þvert á það markmið sem flestir hafa verið sammála um í íslenskum stjórnmálum um ára- og áratugaskeið, mikilvægi þess að dreifa ferðamönnum meira um landið. Þetta gerist á sama tíma og það fer að draga mjög verulega úr ferðum skemmtiferðaskipa, sérstaklega minni skemmtiferðaskipa sem sigla hringinn í kringum landið og stoppa á minni stöðum, þannig að þarna leggst allt á eitt. Á sjó og landi eru skattahækkanir að skerða mjög verulega tækifæri ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Loftslagsmálin eru enn í mikilli óvissu að því leyti að það gengur erfiðlega að fá svör frá stjórnvöldum um í hvað hinir miklu peningar sem settir eru í loftslagsmálin fara. Loftslagsmálin bitna einnig þungt á landsbyggðinni og þar er ég að vísa til hinna ýmsu loftslagstengdu gjalda og skatta sem leggjast í auknum mæli á flug, og þá eru menn að ná loftinu líka. Ég var búinn að nefna skattlagningu á sjó og landi, hækkandi skatta þar, en menn sleppa auðvitað ekkert loftinu, flugsamgöngum, og þar má eiga von á enn dýrara flugi og var það nú nógu dýrt fyrir. Loftslagsgjöldin og refsiskattarnir leggjast líka þungt á landbúnaðinn og bætast þar við mikinn fjölda gjalda og krafna sem íslenskur landbúnaður er látinn búa við þrátt fyrir að vera um leið haldið í stöðugri vörn hvað varðar stuðning ríkisins við matvælaframleiðslu í landinu, því að það hefur verið gegnumgangandi undanfarin ár að ríkið hefur aukið útgjöld sín til flestra málaflokka og heildarútgjöldin vissulega aftur og aftur. Síðasta ríkisstjórn sló öll met ítrekað og þessi ætlar aldeilis að bæta í og auka ríkisútgjöld milli ára um 143 milljarða en að vanda spara þegar kemur að landbúnaði og matvælaframleiðslu þrátt fyrir að þar sé um að ræða grein sem skilar svo gríðarlega miklu til samfélagsins og er undirstaða byggða víða um land. Ef landbúnaðar nyti ekki við þá væri stoðunum kippt undan byggðum víða um landið. Við værum ekki að nýta gæði landsins og búa til úr þeim verðmæti, þessar heilnæmu og góðu vörur sem íslensk matvæli eru, og við værum heldur ekki að spara gjaldeyri að því marki sem landbúnaðurinn tryggir okkur.

Fyrir vikið þykir mér skjóta skökku við að alltaf reynist á einhvern hátt auðveldast að spara þegar kemur að landbúnaði á sama tíma og kröfurnar til greinarinnar eru stöðugt auknar. Matvælaframleiðslan á Íslandi virðist því miður njóta mjög takmarkaðs skilnings hjá þessari ríkisstjórn, að því marki að mér sýnist að enn standi til að sækja að greininni og skerða samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu gagnvart hinni erlendu sem uppfyllir ekki sömu kröfur og sú íslenska og kallar ekki á sömu fjárfestingu og sama kostnað. Þetta veldur mér mjög verulegum áhyggjum því að við erum á eins konar ögurstund hvað varðar stöðu íslensks landbúnaðar og matvælaframleiðslu í landinu. Um allt land heyrir maður núna á bændum að þeir séu orðnir verulega áhyggjufullir. Þeir hafa haft áhyggjur lengi en bændur hafa auðvitað mikið þolgæði og hafa reynt að vera bjartsýnir. Nú þegar þessi ríkisstjórn hins vegar sýnir á spilin gagnvart landbúnaðinum eru menn margir einfaldlega að missa vonina. Ég var í Dalasýslu fyrr í dag og hitti þar bændur sem óttast að sveitir þeirra geti hreinlega lagst í eyði með sama áframhaldi innan ekki svo margra ára. Af því yrði gríðarlegt og margvíslegt tjón fyrir samfélagið og mikill kostnaður þegar upp er staðið því það er miklu dýrara að bregðast við slíku ástandi þegar það er orðinn hlutur og ætla að reyna að vinda ofan af því einhvern veginn eða laga það heldur en að viðhalda og ýta undir verðmætasköpun og uppbyggingu í íslenskri matvælaframleiðslu eins og Miðflokkurinn hefur ítrekað útskýrt hvernig megi gera, m.a. með mjög ítarlegri stefnu flokksins um eflingu íslenskrar matvælaframleiðslu. Það er ekki að sjá í þessu frumvarpi nein áform um að trú sé á landbúnaðinum og vilji til að fjárfesta í honum.

Eitt af fáu þar sem stendur til að spara hjá þessari ríkisstjórn er á sviði nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina. Þar er gert ráð fyrir verulegri lækkun framlaga en þetta helst í hendur við það sem má nánast kalla aðför að grunnatvinnuvegunum vegna þess að nýsköpun á Íslandi hefur að mjög verulegu leyti sprottið upp úr undirstöðugreinum. Þekkt er hversu gífurleg áhrif hinn öflugi íslenski sjávarútvegur hefur haft á nýsköpun. Þar hafa menn haft svigrúm til að fjárfesta í nýsköpun sem hefur leitt til enn þá meiri verðmætasköpunar á hinum fjölbreytilegustu sviðum. Landbúnaður hefur líka verið undirstaða heilmikillar íslenskrar nýsköpunar og þetta er um allt land. Þetta er um allt land en nú er dregið úr stuðningi við nýsköpun á sama tíma og þrengt er að undirstöðuatvinnugreinunum, landbúnaði eins og ég rakti áðan og sjávarútvegi eins og við þekkjum með skattahækkunum þar, vanhugsuðum skattahækkunum sem sveitarfélög hringinn í kringum landið vöruðu við að myndu ekki skila ríkinu auknum tekjum heldur líklega þvert á móti fækkun starfa og minni fjárfestingu. Slíkt blasir nú þegar við á haustmánuðum og nú í vetur þannig að þarna leggst allt á eitt.

Já, svo er ferðaþjónustan, önnur undirstöðuatvinnugrein á landsbyggðinni. Í þessu fjárlagafrumvarpi, og stefnu ríkisstjórnarinnar samhliða því, er verið að kippa stoðunum undan nýrri verðmætasköpun með því að þrengja svona að undirstöðugreinum og það er verið að veikja mjög verulega landsbyggðina. Hún má ekki við því. Þar þarf að snúa vörn í sókn, fara úr mjög dýrri vörn í arðbæra sókn. Þetta höfum við í Miðflokknum ítrekað útskýrt hvernig megi gera, m.a. með stefnu okkar í byggðamálum sem við höfum talað fyrir núna í hátt í áratug, stefnunni sem við köllum Ísland allt og nefnist svo vegna þess að þar er landið allt undir. Allt þarf að spila saman og með innleiðingu slíkrar stefnu getum við farið í þessa miklu uppbyggingu, þessa sókn, þessa auknu verðmætasköpun sem ekki bara landsbyggðin heldur Ísland allt þarf á að halda. Þess í stað er enn þrengt að byggðum landsins. Það sést líka í áherslunum hvað varðar opinbera kerfið þar sem fjöldi starfa heldur áfram að vaxa á mjög afmörkuðum hluta landsins, hérna á höfuðborgarsvæðinu og einkum í Reykjavík, á meðan menn sjá frekar tækifæri til að spara með fækkun stöðugilda á landsbyggðinni. Þetta gengur þvert á það sem einu sinni voru áform um, að stærra hlutfall opinberra starfa færðist í landsbyggðirnar eins og sumir kalla það, færðist vítt og breitt um landið.

Frú forseti. Í lok þessarar umfjöllunar minnar um áhrifin á landsbyggðina ætla ég að nefna það sem hefur kannski verið svolítið rauður þráður í þessari yfirferð, þ.e. að í fjárlagafrumvarpinu er að finna allmörg dæmi þar sem, ef menn reikna þau til enda, má gefa sér að niðurstaðan verði þvert á það sem lagt er upp með, þ.e. að raunveruleg áhrif gangi þvert á yfirlýst markmið. Dæmi um þetta eru áformaðar skattahækkanir á leigutekjur. Telja menn raunverulega í þessari ríkisstjórn, skipaðri m.a. Samfylkingu og Viðreisn sem hafa stundum þóst sýna markaðnum og hagfræði einhvern skilning, að hækkun skatta á leigutekjur muni auka framboð á leiguhúsnæði og lækka leiguverð? Ef menn telja það þá skortir annaðhvort heilbrigða skynsemi eða menn hafa einfaldlega sleppt því að reikna dæmið til enda og valið þá nálgun að kynna einhverja yfirskrift, einhverja fyrirsögn, í trausti þess að enginn hefði fyrir því að reikna dæmið til enda.

Frú forseti. Ég læt þetta nægja af umfjöllun minni um áhrif frumvarpsins á landsbyggðina að öðru leyti en því að ég vil ítreka mikilvægi þess að þingið bregðist við þeirri samgönguáætlun sem kynnt var í gær. Það getur þingið m.a. gert strax með breytingum á því fjárlagafrumvarpi sem hér er til umræðu. Við hljótum að gera ráð fyrir því að það verði gerðar á því einhverjar lagfæringar, þó ekki væru nema augljósar, að menn lagi það sem búið er að leiða fram og benda á að séu beinlínis gallar; jafnvel að menn hugleiði það að gera breytingar á þessum atriðum sem skila gagnstæðri niðurstöðu, gjaldahækkunum til að mynda sem draga úr tekjum ríkissjóðs í stað þess að auka þær; jafnvel að menn hugi líka að einhverju sem gæti verið til þess fallið að hefta eða draga úr verðbólgu fremur en að hækka hana. Það er heilmikil vinna enn óunnin í þessu fjárlagafrumvarpi þó að við séum hér í 2. umræðu en við verðum að vona það, frú forseti, að það sé vilji til þess af hálfu stjórnarmeirihlutans að gera þó ekki væri nema þessar lagfæringar og að hluti af þeim lagfæringum snúi að samgöngumálunum, að því að þingið stoppi ríkisstjórnina af eða einstaka ráðherra hennar þegar verið er að gera mistök. Þessari annarri ræðu minni í 2. umræðu um fjárlög lýk ég á þessum hvatningarorðum, sérstaklega til meiri hlutans hér: Munið eftir ábyrgð þingsins. Það er þingið sem á að ráða þessu. Hér er eitt og annað sem þarf að laga og hugið sérstaklega í því samhengi að byggðum landsins og samgöngumálunum.