157. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[23:04]
Horfa

Viktor Pétur Finnsson (S):

Frú forseti. Það var virkilega skemmtilegt að heyra orðaskipti formannanna hérna á undan mér og gaman að heyra áhugann á umræðu um hægrimennsku hér í þinginu. Nú ætla ég að byrja á því að höfða til þeirra hægri manna sem sitja á þingi, hvort sem þeir eru í ríkisstjórn eða ekki en þó aðallega til þeirra sem eru í ríkisstjórn. Ég hvet ykkur til að taka ekki þátt í því að sitja í vinstri stjórn og ekki ef þú skilgreinir þig sem hægri mann vegna þess að við erum í tísku. Það er hægri sveifla og við sem erum meðal ungs fólks finnum að það er eftirspurn eftir hægri sjónarmiðum, lækkun skatta, auknu frelsi. Ég hef svolítið verið að velta því fyrir mér fyrir hvern þetta frumvarp er gert. Hver er það sem græðir á þessu? Útgjöld eru að aukast um 143 milljarða. Það eru nýir skattar upp á 25 milljarða. Hallinn er að aukast. Það er meiri skuldasöfnun. Á sama tíma er verið að leggja niður samsköttun hjóna. Nýtt frumvarp um húsaleigulög sem var samþykkt núna fyrir tveim vikum ber í raun og veru ekkert annað í sér en hækkun á leigu til leigjenda. Það er meira að segja tekið fram í áliti meiri hluta að horft hafi verið til þess að óhagnaðardrifin leigufélög, og þar voru meira að segja nafngreind Byggingafélag námsmanna og Stúdentagarðar, skyldu ekki undanþegin frumvarpinu sem þýðir að Byggingafélag námsmanna og Stúdentagarðar þurfa nú að hækka leigu á námsmenn. Á sama tíma og þetta er gert er stuðningur við námsmenn minnkaður um 43% í nýju frumvarpi, úr 8,785 milljörðum í 4,7 milljarða. Þetta finnst mér alls ekki til þess fallið að styrkja framtíðarkynslóðir. Mér finnst þetta ekki til þess fallið að huga að ungu fólki sem ég hefði haldið að ríkisstjórn Íslands hefði alla vega augun á og væri að fylgjast með.

Það er svo margt sem væri hægt að taka til sem brennur á fólki sem þó hefur aldur. Það eru áfengisgjöld og tóbaksgjöld sem ég legg til að hægri menn sem sitja hér í salnum standi með í að við leggjum niður gjörsamlega. Ég átta mig ekki alveg á því af hverju þessi hækkun erfðafjárskatts er að eiga sér stað og af hverju við leggjum hann ekki niður eins og frændur okkar Norðmenn og Danir. Það er eins og þessi ríkisstjórn átti sig ekki á Laffer-kúrfunni sem ég ætla bara ekki að fara að útskýra hér, þar sem ég held að flestir hér í salnum skilji hana. Í grófum dráttum held ég að ekki sé langt að sækja dæmin. Norðmenn hækkuðu auðlegðarskatt í fyrra eða hittiðfyrra. Þessar skatttekjur áttu að auka tekjur norska ríkissjóðsins um 146 milljónir norskra króna. Þeir fóru yfir þessa blessuðu Laffer-kúrfu sem þýddi að úr hagkerfinu hurfu eignir fyrir 54 milljarða norskra króna og þeir urðu af árlegum skatttekjum upp á 594 milljónir. Mig grunar að þessi ríkisstjórn sé að ganga á þessa kúrfu, að það sé verið að ganga á veski Íslendinga í allt of miklum mæli. Mig grunar að ungt fólk sem er farið erlendis sé farið að huga að því að festa rætur úti frekar en að koma heim. Á sama tíma og við erum að tala um að við ætlum að gera eitthvað fyrir framtíðina er verið að draga úr fjárstuðningi við námsmenn. Jöfnunarsjóðsfrumvarpið sem kom um daginn átti ekki að gera neitt annað en að hækka tekjuskatt á íbúa þeirra sveitarfélaga þar sem útsvar er ekki í botni. Ég er reyndar sáttur með að fallið verði frá því, alla vega tímabundið. Ég held þó að það sé fátt sem þessi ríkisstjórn er að gera sem framtíðarkynslóðir munu líta mjög björtum augum. Ég hvet þau til að endurhugsa það, endurhugsa hvernig þau geta bætt framtíðarkynslóðir.

Ég ætla að vona að ekki komi upp hugmyndir eins og hugmynd Flokks fólksins í kosningabaráttunni í fyrrahaust þar sem talað var um að skattleggja iðgjöld í lífeyrissjóði. Ég legg frekar til að við breytum því hvernig við tökum skatt út úr lífeyrissjóðum, t.d. með því að ekki sé greiddur tekjuskattur heldur fjármagnstekjuskattur af því sem tekið er út úr lífeyrissjóði eða jafnvel að fella þann skatt niður, einungis til að styrkja þá sem eru að fá lífeyrisgreiðslur. Ég átta mig ekki á af hverju við þurfum alltaf að horfa á hvar við getum grætt meiri pening í stað þess að auka frelsi fólks og leyfa því að ráðstafa sínum tekjum sjálft.