157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
breyting á starfsáætlun.
Á fundi forsætisnefndar þann 2. desember sl. var samþykkt að laugardagurinn 6. desember yrði þingdagur, eins og forseti tilkynnti á þingfundi þann dag. Miðað við stöðuna í þinghaldinu og það að samningar náðust er hvorki þörf á að boða þingfund né halda fundi í nefndum á morgun og verður laugardagurinn 6. desember því ekki þingdagur og nýtist til annarra starfa.