157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:03]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Það er gríðarlega mikilvægt í störfum þingsins undir handleiðslu hæstv. forseta og forsætisráðherra að það komi réttar upplýsingar fram. Í gær var hér fullyrt af hæstv. forsætisráðherra að niðurstöður í samgönguáætlun, ekki síst hvað varðar jarðgangaforgangsröðun, væru byggðar á faglegu mati. Þetta var fullyrðing. Seinna fáum við fréttir af því að hæstv. innviðaráðherra hafi ekki einu sinni lesið skýrsluna og það sem hann þó túlkaði úr skýrslunni var augljóslega ekki rétt miðað við það sem fram kemur hjá höfundum skýrslunnar. Þar er einfaldlega sagt að niðurstaða skýrslunnar sé önnur en sú sem hæstv. ráðherra fullyrðir að hún sé. Ég beini því til forseta að brýna fyrir ráðherrum og meiri hlutanum, ríkisstjórninni allri, að við fáum réttar upplýsingar en ekki eitthvert froðusnakk til að láta hlutina líta vel út.