157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:04]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. innviðaráðherra sagði á dögunum þegar hann kynnti samgönguáætlun að þetta hefði verið unnið á faglegu mati og unnið eftir skýrslu. Síðan kemur hæstv. forsætisráðherra hér upp og talar um að þetta hafi verið faglega unnið. Í fjölmiðlum í gær kemur fram að hæstv. ráðherra hafi ekki lesið skýrsluna. Það undirstrikar bara það eitt sem við Austfirðingar vissum og nú er búið að staðfesta, að þetta er hrein og bein pólitík og hefur ekkert með fagleg vinnubrögð að gera. Og eftir sitja Austfirðingar með sárt ennið.