157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:06]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp undir liðnum um fundarstjórn forseta. Ég skynja það bæði á hv. þingmönnum en einnig finn ég ákall úr samfélaginu öllu að nýkynnt samgönguáætlun komist á dagskrá þingsins og við fáum tækifæri til að ræða hana, vísa henni til nefndar og að hún fái gott umsagnarferli. Ég óska eftir því við hæstv. forseta að við reynum að finna tíma til að koma samgönguáætlun á dagskrá milli umræðna í fjárlögum. Þá getum við einmitt tekið og rætt samgönguáætlun, sent hana svo til nefndar og vísað til umsagnar þar sem við höfum góðan tíma yfir jólin, inn í janúar, til að vera með lengra umsagnarferli í svona stóru og mikilvægu máli.