orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Frú forseti. Nú þegar verið er að skipuleggja næstu daga og þingstörfin fram að jólahléi hvet ég yður til að bíða með umræðu um samgönguáætlun hér í þingsal því að í ljós er komið að sú skýrsla, sú tillaga byggist ekki á réttum forsendum, ekki á faglegum forsendum, þrátt fyrir yfirlýsingar hæstv. ráðherra hér áðan. Það hefur komið á daginn að megingagnið sem hæstv. ráðherra vísaði í hafði hann ekki kynnt sér til hlítar og var leiðréttur af höfundum umræddrar skýrslu. Ríkisstjórnin hlýtur því að vilja kalla þetta mál til baka, endurskoða það og vinna betur. Því væri ekki gagn að því, tel ég, að skýrslan komi hér til umræðu og við lendum í þeirri stöðu að hæstv. ráðherra og ríkisstjórnin fari að verja hana óbreytta gagnvart þinginu þegar hún byggist ekki á réttum forsendum.