orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að ræða þá hvatningu til forseta frá hv. þm. Guðmundi Ara Sigurjónssyni að setja samgönguáætlun á dagskrá. Ég hlakka mikið til að ræða samgönguáætlun og þar er margt að fara yfir. En ég vil bara minna virðulegan forseta á það að við erum að fara í atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu til fjárlaga og enn á eftir að afgreiða suma skattormana út úr efnahags- og viðskiptanefnd og við eigum eftir að ræða alla þessa skattorma ríkisstjórnarinnar hér. Það þarf nú heldur betur að ræða þá. Það er verið að loka 2. umræðu fjárlaga áður en það liggur fyrir hversu mikla skatta þessi ríkisstjórn ætlar að innheimta. Við skulum bara hafa það á hreinu að þetta þarf að klárast áður en við förum að setja óunna samgönguáætlun á dagskrá.