157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég verð nú að taka undir þetta og minni á að samgönguáætlun var útbýtt hér í þinginu 4. eða 5. desember þannig að samkvæmt þingsköpum er ekki hægt að taka það mál til umræðu fyrir jól. Það segir sig sjálft. Í ljósi þess að hæstv. ráðherra virtist ekki hafa lesið heima áður en hann fór í þetta verkefni sitt, ekki heldur nýtti hann þau tæki og tól sem ríkisstjórnin hefur til að vanda til lagasetningar þar sem samgönguáætlun fór ekki einu sinni í samráðsgáttina, er bara ágætistími fyrir hæstv. ráðherra og ríkisstjórnina að draga þetta mál til baka, setja inn á samráðsgáttina og svo getum við átt málefnalega umræðu um þá vonandi ágætlega unnið skjal einhvern tímann í janúar.