157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.

[13:15]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Málið er ekkert mjög flókið í eðli sínu. Hér hefur verið staðfest að samgönguáætlun, sem nú hefur verið kynnt, er ekki unnin á faglegum forsendum og höfundar skýrslunnar sem hæstv. ráðherra vitnaði í þurfa að koma fram í fjölmiðlum til þess að leiðrétta hæstv. ráðherra. Við erum að ræða fjárlög sem hanga á bláþræði út frá stöðugleikareglunni og eru líklega fallin. Við erum að fara að ræða hækkaða skatta í næstu viku. Það er ekkert svigrúm til þess að fara að ræða samgönguáætlunina í næstu viku eða fyrir jól. Því skora ég á virðulegan forseta að vísa samgönguáætlun ekki í umræðu hér í þinginu. Það er engin ástæða til þess. Gefum frekar hæstv. ríkisstjórn tækifæri á að leiðrétta þá samgönguáætlun sem hefur komið fram og horfa kannski og hlusta á þá ráðgjafa og skýrsluhöfunda og aðra sem hafa komið fram til þess að leiðrétta þetta plagg. Það væri meiri bragur yfir því. Svo skulum við ræða samgönguáætlun þegar hún kemur þá breytt til baka.