157. löggjafarþing — 42. fundur, 5. des. 2025.
orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Það er rétt að forseti upplýsi hv. þingmenn um að þingflokksformenn allra þingflokka á Alþingi eru upplýstir um gang mála hér og einnig um það hvað er fyrirhugað að setja á dagskrá þingfunda eftir helgi. Ég mæli með því að hv. þingmenn ræði við þingflokksformenn flokka sinna og kynni sér hvað er í pípunum.