orð ráðherra varðandi faglegt mat á jarðgöngum.
Frú forseti. Það er afar einkennilegt að hlýða hér á stjórnarandstæðinga koma hér upp undir þessum lið og vera að tala um vinnubrögð við samgönguáætlun sem er nýkynnt og byggir á drjúgri vinnu sem staðið hefur um nokkra hríð. Þá er vitnað til skýrslu sem kom út í síðustu viku. Hvað sem því líður þá held ég að þessir ágætu herramenn og hv. þingmenn í stjórnarandstöðunni almennt ættu að líta til eigin verka þegar komið er að samgönguáætlun. Luku þeir gerð samgönguáætlunar? Nei, hún stóð ókláruð vegna ágreinings. Hvernig var með það verk sem mest er deilt um, Fjarðarheiðargöng? Komu þeir því verki í gang á þeim fimm árum sem það var á samgönguáætlun? Nei, þeir gerðu það ekki, þannig að þegar þessir hv. þingmenn koma upp og tala digurbarkalega niður þá vinnu sem hér er verið að vanda til þá finnst mér ekki vera sómi að því.