um samgönguáætlun.
Virðulegur forseti. Flumbrugangur ríkisstjórnarinnar er ekki bara vandamál hennar heldur líka virðulegs forseta og þingmanna allrar þjóðarinnar ef út í það er farið. Það er með ólíkindum að fylgjast með þessari atburðarás. Fyrir þá sem eru búnir að gleyma því þá er samgönguáætlun alla jafna unnin þannig að hún er send í samráðsferli, tekið er á móti henni og hún unnin með ákveðnum faglegum hætti. En við erum ekki að horfa á það núna. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem kalla eftir því að forseti upplýsi um það hverjar fyrirætlanirnar eru. Hér hafa forystumenn stjórnarliða komið fram með hugmyndir sem myndu setja vandræðaganginn í þinginu í enn meiri vandræði. En hins vegar er gott að vita af því að hæstv. innviðaráðherra er, held ég, (Forseti hringir.) efstur í keppninni í lestrarátaki ráðherra og gott að fá allar þær upplýsingar sem við fengum hérna rétt áðan.