fjárlög 2026.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmönnum fyrir vinnuna sem nú er að baki og umræðuna, sérstaklega vil ég þakka vinnu hv. þingmanna sem sitja í hv. fjárlaganefnd. Ég vil taka fram á þessum tímapunkti að ég er meðvitaður um stöðu mína sem ráðherra utan þings og hef lagt á það áherslu að sinna þinginu og taka þátt í virkum skoðanaskiptum í þingsal, m.a. í umræðum um fjárlög. Ég vil þakka stjórnarandstöðunni fyrir þau ágætu skoðanaskipti. Nú er það auðvitað þannig að fjármálaráðherra getur haft aðra sýn á það hver þróun ríkisfjármálanna er en ég vil í þessu samhengi, og vegna þeirra breytinga sem fjárlaganefnd hefur lagt til, ítreka að fjárlögin eru enn í samræmi við fjármálaáætlun, að þau eru enn mikilvægt skref í áttina að því að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs og mikilvægt skref í áttina að hallalausum fjárlögum 2027.