157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:46]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að þingflokkur Viðreisnar styður fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Flokks fólksins og breytingartillögur meiri hluta fjárlaganefndar. Við erum afskaplega stolt af þessari vinnu. Mig langar að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa komið að undirbúningi þessa frumvarps, sérstaklega starfsfólki stofnana ríkisins og ráðuneyta og að sjálfsögðu þingsins. Mig langar líka að nota tækifærið og þakka öllum þeim sem sendu inn erindi og komu í heimsóknir til nefndarinnar og að sjálfsögðu vil ég að lokum þakka fyrir gott samstarf í nefndinni og góðar umræður hér í þingsal.