157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:51]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er með miklu stolti sem ég tek þátt í þessari atkvæðagreiðslu um fjárlög og við í Samfylkingunni styðjum þau sannarlega. Ég vil þakka fjármálaráðherra fyrir frumvarpið, þakka þinginu fyrir góðar umræður og fjárlaganefnd fyrir frábært samstarf. Það eru mikilvægar breytingar við 2. umræðu, lögð er sérstök áhersla á endurhæfingu, eins og heilbrigðisráðherra nefndi, meðferðarúrræði og sjúkraflutninga á landsbyggðinni, fjarlækningar, sem skipta máli fyrir framlínuna því að við viljum hafa góða þjónustu um land allt. En það er líka verið að efla sóknaráætlanir landshluta og þannig færa völd í heimabyggð. Það er nýr tónn, góður tónn, í þessu frumvarpi sem styður við framþróun í góðu landi sem við eigum öll saman. Þó að okkur greini stundum á í þessum sal held ég að við stöndum líklega saman um 99% í þessu frumvarpi.