fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um fjárlög sem náð er saman með því að kafa dýpra í vasa landsmanna og fyrirtækja í landinu. Það er út af því að stjórnarflokkarnir höfðu ekki kjark í sér til að hemja útgjaldavöxtinn, höfðu ekki kjark í sér til að hagræða. Fyrir það þurfa heimili landsins nú að borga með hærri tekjum af sköttum. Það er hins vegar þannig að þegar við erum að fara að greiða atkvæði um þetta höfum við ekki enn fengið upplýsingar um það hvernig hæstv. ríkisstjórn ætlar að láta þessar tekjuáætlanir sínar standast. Þau munu ekki ná að innheimta þessa skatta þegar verið er að kæfa heimilin og fyrirtækin svona með þessum álögum. Og það er ekki einu sinni búið að afgreiða þetta hingað til þingsins, þessa skattorma sem eiga að innheimta þessa skatta. Það verður því erfitt að horfa upp á þetta samþykkt hér á eftir.