fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að taka undir þakkir til hv. fjárlaganefndar og þakka henni fyrir afskaplega gott samstarf og sérstakar þakkir til formannsins. Ég er alveg gríðarlega stolt af fyrstu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar. Við erum að laga ríkisfjármálin, við erum að taka á áratugalöngum hallarekstri ríkissjóðs sem neyddi Seðlabankann til að hækka stýrivexti upp fyrir 9%. Við erum að helminga hallarekstur ríkissjóðs. Þrátt fyrir það erum við að kæla kerfið á sama tíma. Við erum að taka niður verðbólgu og vexti. Á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar hafa skuldir ríkissjóðs lækkað um 7,5% af vergri landsframleiðslu, á fyrsta ári nýrrar ríkisstjórnar. Við höfum séð til þessa fimm vaxtalækkanir Seðlabanka Íslands. Vextir hafa lækkað um 1,75% frá því að fyrri ríkisstjórn fór frá. Minnsta verðbólga frá árinu 2000. Kæri þingheimur. Ég held að planið sé að virka. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )