157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[13:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hv. þm. Eiríkur Björn Björgvinsson, jú, það kemur á óvart að Viðreisn sé að styðja þessi fjárlög og það sem þau innihalda, þetta gríðarlega mikla útgjaldafrumvarp, vinstri útgjaldafrumvarp; 143 milljarðar í aukin útgjöld, yfir 30 milljarða skattahækkanir. Sleggjan er ekki að virka, það er öllum ljóst, hreinn og beinn brandari hvernig þetta hefur þróast, hún er ekki að virka. Síðast en ekki síst fer landsbyggðin mjög halloka í þessu fjárlagafrumvarpi, það er öllum ljóst sem skoða það. Og nýjustu fréttir af nýrri samgönguáætlun og hvernig hún er sett upp — það sést að landsbyggðin fer halloka. Annars vildi ég þakka fyrir ágæta samvinnu í nefndinni þetta haustið varðandi vinnu við fjárlögin.