fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér eru fjárlög sem eru taumlaus útgjaldaaukning, skuldsetning og skattahækkanir upp á 30 milljarða á heimilin og fyrirtækin í landinu og stöðugleikareglan er nú þegar fallin, hún er nú þegar fallin í raun. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aðra pólitíska sýn. Við erum hér með í tillögum okkar að lækka skatta og gjöld á heimilin og fyrirtækin í landinu upp á rúma 30 milljarða og við erum með tillögur um hvernig hægt er að hagræða á móti sem nemur mun meira. Það heitir að hafa pólitískt þor og sýn til að létta byrðar fyrirtækja og heimila í landinu til þess að ganga áfram veginn en ekki eins og vinstri menn gera alltaf, þ.e. að þyngja byrðarnar á fólkið í landinu og halda að þá gangi okkur betur. Þarna er hinn stóri pólitíski munur. Þetta fjárlagafrumvarp mun bara þyngja byrðarnar á heimilin í landinu en við viljum létta byrðarnar á heimilin í landinu.