157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:08]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég tek undir það sem hér var sagt áðan, það eru alveg hreint ótrúleg tíðindi fólgin í því að hér skuli stjórn og stjórnarandstöðu allt í einu greina á um fjárlög. Í hvaða stöðu er þessi ríkisstjórn þegar hún tekur við? Hvert er vaxtastigið í landinu þegar þessi ríkisstjórn tekur við? Hverjar eru verðbólgutölurnar þegar þessi ríkisstjórn tekur við? Hvað greiðir íslenska ríkið mikið í vexti allt síðasta kjörtímabil? Hver er staðan þegar þessi ríkisstjórn tekur við? Hér koma þingmenn Sjálfstæðisflokksins og þingmenn Framsóknarflokksins algerlega búnir að steingleyma því að þeir hafi verið í ríkisstjórn síðustu tíu ár. Stýrivextir uppi í rjáfri, verðbólga uppi í rjáfri, endalaus útgjaldaþensla ríkisins á tímum þegar það þurfti akkúrat að fara í hina áttina. Nú er verið að snúa við af þeirri braut. (Gripið fram í.) Það er talað um pólitíska forystu, pólitískt þor og pólitíska sýn. Sú staða sem þessi ríkisstjórn tók við segir allt um það hver pólitíska sýnin var, hvert pólitíska þorið var og hver staða ríkisfjármálanna var.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að gefa ræðumanni hljóð og vekur athygli á því að enn eiga þó nokkrir þingmenn eftir að taka til máls um atkvæðagreiðsluna.)