157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:17]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um fyrstu fjárlög þessarar vinstri stjórnar sem hér er við völd í dag. Vinstri stjórnin sem er að svíkja loforðin við fólkið í landinu, sem sagðist ekki ætla að hækka skatta. Hér er ekki um neitt nema skattahækkanir að ræða hægri vinstri. Þessi ríkisstjórn velur verri kostinn af tveimur; dregur ekki úr útgjöldum heldur bara hækkar skatta, hækkar skatta og hækkar skatta. Fullkomlega galið. Landsbyggðin fer alveg svakalega illa út úr þessu og ég geri verulegar athugasemdir við það.

En eitt vil ég segja. Hæstv. ráðherra Jóhann Páll Jóhannsson kom hér upp áðan og sagði að sleggjan væri að virka. Já, sleggjan er sannarlega að virka — hún er að virka til að berja niður fólkið í landinu, berja niður fyrirtæki, berja niður möguleika til verðmætasköpunar. Þannig er hún að virka.