157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:19]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Frasa- og áróðursútspil ríkisstjórnarinnar það sem af er kjörtímabilinu eru nánast óteljandi, svo mörg eru þau. Eitt það fyrsta var fyrir nánast sléttu ári síðan, strax í stjórnarmyndunarviðræðunum, þegar blásið var í lúðra og þau báru sig einkar aumlega yfir því að þau væru að taka við miklu verra búi en þau héldu. Þetta er sama stef og hv. þm. Sigmar Guðmundsson endurtekur hér og stenst enga sanngjarna skoðun, enga. Þvert á móti hefði hæglega verið hægt að stefna að hallalausum fjárlögum strax á næsta ári. Vilji ríkisstjórnarinnar stendur einfaldlega ekki til þess. Í staðinn á að koma með hressa 143 milljarða í útgjaldaaukningu, sem á að mæta hvernig? Jú, með sköttum, sem við ræðum betur um í bandormum hér næstu daga, sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason kallar réttilega skattorma því þar eru ekkert nema skattahækkanir og það þrátt fyrir að fyrir ríflega ári hafi sömu flokkar lofað að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. (Forseti hringir.) Þetta er ekkert nema svik við venjulegt fólk. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )