157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:20]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við ræðum hér 143 milljarða kr. útgjaldaaukningu. Einu sinni áður á undanförnum 20 árum, hugsanlega, hefur verið önnur eins aukning. Það er alger skortur á varfærni og í raun algjör skortur á því að horfa á stöðuna eins og hún er í dag. Við erum að horfa á vaxandi atvinnuleysi. Það hefur verið vegið að sjávarútvegi. Það er verið að vega að ferðaþjónustu. Það eru allir að draga saman. Skattar ekki hækkaðir á venjulegt fólk, það er stef sem við höfum heyrt endurtekið hér undanfarnar vikur og mánuði, en landsmenn munu fljótlega átta sig á því, þegar þeir finna fyrir því í veskinu sínu sjálfir, hvernig þessi ríkisstjórn starfar raunverulega. Við sjáum það bara með samsköttun hjóna sem er verið að taka hér út. Það er verið að bæta við þrepi í lyfjakostnaði sem á að minnka kostnað einstaklinga varðandi lyf en þetta er 450 millj. kr. hagræðing hjá ríkisstjórninni. Tölum um hlutina eins og þeir eru. Hættum að slá ryki í augu almennings og verum heiðarleg í garð fólksins í landinu.