fjárlög 2026.
Frú forseti. Hv. þingflokksformaður Viðreisnar bauð aðeins upp í dans. Ég held að það sé enn einu sinni rétt að minna á hvað hefur gerst í þessu landi á síðustu árum, það hefur fallið svolítið í gleymskunnar dá hjá meiri hlutanum í dag. WOW air féll 2019, Covid 2020–2021, Úkraínustríðið hófst 2022, aðfangakeðjur rofnuðu um allan heim, Reykjaneseldar kostuðu tæpa 100 milljarða. Í heildina er beinn kostnaður við ríkissjóð á þessum árum, 2019–2024, 350 milljarðar og áhrifin talin í heild sinni um 600 milljarðar. Áhrifin á ríkissjóð voru svona 100–120 milljarðar á ári að meðaltali á þessum tíma. Það er ekki talað um þetta. Það er bara eins og þetta hafi aldrei gerst, einhver Covid-gleymska. Það er nefnilega þannig að þau fjárlög sem voru samþykkt hér fyrir ári, fyrir árið 2025, standast ótrúlega vel tímans tönn og áhrifin á ríkisfjármálin, það sem gerst hefur með vaxtalækkunum og annað, koma fram í þeim fjárlögum sem voru samþykkt fyrir ári, fyrir þetta ár. (Forseti hringir.) Nú skulum við sjá hvernig þessum nýju fjárlögum fyrir 2026 mun farnast.