fjárlög 2026.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson kom með þá athugasemd að mín ræða hefði verið líkt og hún hefði verið úr kosningabaráttunni í fyrra og það er ekkert skrýtið. Við erum að gera nákvæmlega það sem við lofuðum að við myndum gera í kosningabaráttunni í fyrra. [Hlátur í þingsal.] Hlæið bara. Við erum að stöðva skuldasöfnun ríkisins og ná að stöðva hallarekstur ríkissjóðs árið 2027, stöðva skuldasöfnun, ná niður vaxtabyrði ríkissjóðs og skapa þannig skilyrði að verðbólga geti lækkað og vextir geti lækkað. Það er besta skattalækkun sem við getum skilað venjulegu fólki eða óvenjulegu fólki í þessu landi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)