157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:24]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er miður hve farið er með mikið af ósannindum við rökstuðninginn með þessu fjárlagafrumvarpi. Eins og ég fór inn á áðan eru skattahækkanirnar gríðarlegar á sama tíma og það þrengir að í íslensku efnahagslífi. Nú eru áskoranir bæði fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu en skattahækkanirnar á þau, sem eru ítrekaðar, eru rökstuddar með því að fara eigi í stórfellda innviðauppbyggingu. Svo sjáum við hér kynnta samgönguáætlun sem er sögð vera fjármögnuð. Það sést hvergi í fjármálaáætluninni, sem nær bara til 2030, að þessi samgönguáætlun sé fjármögnuð og ekki í þessum fjárlögum, en allar helstu framkvæmdirnar sem hæstv. ríkisstjórn montaði sig af í þessari samgönguáætlun hefjast ekki fyrr en 2031 eftir að kjörtímabilinu lýkur og eftir að tímabili fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar lýkur. Þetta er alger lygi og þetta er dónalegt.