fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Ég fann mig eiginlega knúinn til að koma hingað upp. Í ljósi umræðunnar hér um hvernig þessi hæstv. ríkisstjórn tók við, og hver staðan var þegar hæstv. ríkisstjórn tók við, þá er ágætt að lesa og vera lesinn. Í þessu ágæta frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra til fjárlaga fyrir árið 2026 segir á bls. 116, með leyfi forseta, þar sem er samanburður á áætlun fjárlaga og uppfærðar afkomuhorfur fyrir árið 2025 — þar gerir fjármálaráðuneytið ráð fyrir því að halli ársins 2025 verði 19,2 milljarðar; að halli ársins 2025 verði 19,2 milljarðar vegna þess að afkoman var miklu betri. Við erum að fara hér á næsta ári í 25, það verður sennilega aukinn halli 2026 miðað við árið 2025. Við erum að auka hallann.