157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:29]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. fjárlaganefnd fyrir góða vinnu. Hér er mikið rætt um skatta og gjöld og vinstrimennsku og hægrimennsku og alls konar nefni. Við getum alveg rætt um það, enda höfum við eflaust mismunandi áherslumál þar. Mér finnst kannski allt í lagi að tala aðeins um hvað er innifalið í þessari 25–35 milljarða tölu. Veiðigjöld, 7,5 milljarður. Vörugjöld og kílómetragjöld sem voru inni í fjármálaáætlun síðustu ára, sem gera það að verkum að við getum staðið undir vegakerfinu okkar, gert við það, stuðlað að verðmætasköpun. Þetta eru í rauninni ekki nýjar fréttir en skynsamleg viðbót að mínu mati. Samnýting efstu þrepa sem snertir efnaðasta fólk landsins. Já, það er pólitísk áhersla. En þetta er samt það sem það er. Jöfnunargjald raforku sem rennur svo aftur til fólksins sem borgar of hátt verð fyrir raforkuna sína. Og já, það eru breytingar á fjármagnstekjuskatti vegna þess að fólk gat fengið persónuafslátt á þeim. Þannig að það er vissulega pólitík í því. Það er allt í lagi að lyfta þessu upp á borð. Þetta eru tölurnar sem við erum að tala um. Við erum líka að tala um 7 milljarða viðbót í viðhald á vegakerfinu. (Forseti hringir.) Við erum að tala um, í fyrsta skipti í mörg ár, að fullfjármagna skuldbindingar frá ríkinu til að byrja að bora aftur göng á Íslandi, (Forseti hringir.) í fyrsta skipti í mörg ár í lok næsta árs. Ég er stolt af þessum fjárlögum og ég er stolt af vinnu ríkisstjórnarinnar.