fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér undir 1. tölulið, sundurliðun 1, erum við að greiða atkvæði um að viðhalda samsköttun hjóna, sem sagt að hætta við að afnema samsköttun. Samsköttunin tryggir grunneiningu þessa lands sem er fjölskyldan, að fjölskyldan fái fjárhagslegt frelsi til að haga sínum málum eftir hag og aðstæðum fjölskyldunnar hverju sinni. Með því að afnema samsköttunina, eins og hæstv. ríkisstjórn er að leggja til hér, gert ráð fyrir auknum tekjum upp á 4 milljarða frá fjölskyldum þessa lands, er dregið úr svigrúmi fyrir hjón að klára nám, eða breyta einhverju vegna barneigna eða atvinnustöðu eða annað slíkt. Ríkisstjórnin er hér að leggja stein í götu heimilanna í landinu.