157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:36]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við erum í raun að greiða atkvæði um auknar tekjur inn í ríkissjóð. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að þessar tekjur fara ekki í íslenska ríkissjóðinn heldur ríkissjóði annarra landa. Þrátt fyrir að við séum með einhver lög í landinu sem banna ákveðna starfsemi þá er alnetið þannig að við getum ekkert stjórnað því. Það hefur verið metið svo að ef við leyfum þessa starfsemi hér þá muni það skila 10 milljörðum á ári í tekjur fyrir ríkissjóð. Og aftur: Þetta snýst ekki um það hvort menn séu fylgjandi því að þessi starfsemi sé til staðar eða ekki. Hún er bara til staðar. En tekjurnar af henni fara ekki í íslenska ríkissjóðinn heldur í ríkissjóði annarra landa.

Ég var að vonast til þess, virðulegi forseti, að það yrði góð samstaða um þessa tillögu en aftur varð einhver misbrestur á því. Ég vil taka það fram að við erum sömuleiðis með tillögur um forvarnir á þessu sviði, mjög ríflegar. En þarna er eitthvað sem við gætum svo sannarlega nýtt okkur í okkar sameiginlegu sjóði ef vilji er fyrir hendi.

(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna hv. þingmenn á að greiða atkvæði áður en þeir gera grein fyrir atkvæði sínu.)