157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:42]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Svo að þingheimur átti sig á hvað er verið að tala um þá er hér verið að tala um að hækka endurgreiðslumarkið í prósentum talið af framkvæmdum á byggingarstað, verja þá sem eru að byggja sín heimili. Auðvitað snýst þetta um að það verði framboð á lóðum og annað en þetta snýst einnig um að koma þessu gangverki aftur af stað. Til lengri tíma viljum við fara aftur í 100% endurgreiðslu á byggingarstað eins og var og teljum það gríðarlega mikilvægt. Þetta er mikilvægt fyrir heimilin í landinu til að eiga möguleika á því að byggja yfir sig. Þetta lækkar byggingarkostnað í landinu um þó nokkuð mörg prósent, ætli þau séu ekki sex eða sjö. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Það eru ýmsar aðrar sparnaðaraðgerðir á móti bara svo því sé haldið til haga við hæstv. ráðherra sem fór hér stórum. Þetta mál er náttúrlega gríðarlega stórt og mikilvægt mál fyrir fjölskyldurnar í landinu varðandi það að byggja húsnæði með ódýrari hætti og hefur jákvæð áhrif á byggingarmarkaðinn. Þess vegna vona ég svo sannarlega að það verði kosið með þessu á grænu hér. Þingmaðurinn segir já.