157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[14:44]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég tel að þetta sé ein af þessum brýnu aðgerðum sem hægt væri að ráðast í til að gefa þetta súrefni sem vantar í hagkerfið núna og ekki síst fyrir húsnæðismarkaðinn og byggingariðnaðinn. Þetta er aðgerð sem sveitarfélögin, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðrir hafa kallað mjög ákaft eftir og myndi skipta mjög miklu máli í þeim þrengingum sem nú eiga sér stað. Tal um að það sé um einskiptisaðgerð að ræða er náttúrlega alrangt og einhver misskilningur hjá hæstv. ráðherra sem lét þau orð falla hérna áðan. Þetta er aðgerð sem myndi hafa áhrif út í allt hagkerfið og styðja þá sem eru að byggja, hvort sem það eru opinberir aðilar, einstaklingar eða fyrirtæki. Ég hvet hæstv. ráðherra til að kynna sér — af því það er nú búið að tala dálítið um það að menn séu ekki að kynna sér skýrslur eða gögn og hvaðeina, það hefur flogið hér á milli — frábærar tillögur 3. minni hluta í fjárlaganefnd (Forseti hringir.) þar sem lagðar eru til miklar hagræðingaraðgerðir í formi þess að leggja niður verkefni eða minnka framlag til þeirra.

(Forseti (ÞSv): Þingmaðurinn segir?)

Já.