fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hér erum við að ræða um vörugjöld, 7,5 milljarða sem á að fella niður samkvæmt þessari tillögu. Ég get tekið undir hana vegna þess að það er alveg ljóst og hefur komið fram hér margsinnis í ræðu um fjárlagafrumvarpið, og það hefur komið vel í ljós í fjárlaganefnd fyrir þá fjölmörgu sem þangað hafa komið og rætt um málið, að þessir fjármunir eru ekki að fara að skila sér í ríkissjóð. Það er algjörlega ljóst að þarna er fugl í skógi en ekki í hendi. Hins vegar er það þannig að ef við tökum þessa 7,5 milljarða út án þess að aðhafast nokkuð annað er líka ljóst, sem er reyndar ljóst hvort sem er vegna þess að þessar tekjur munu ekki koma, að stöðugleikareglan er fallin. Þar af leiðandi munum við í Framsókn sitja hjá við þessa annars ágætu tillögu.