fjárlög 2026.
Virðulegur forseti. Hv. formaður fjárlaganefndar, Ragnar Þór Ingólfsson, kom upp í pontu nú á dögunum og sagði að stöðugleikareglan væri á núllinu og vonandi réttum megin við núllið. Stöðugleikareglan hangir því á ígildi verðs smábíls, meira að segja fyrir hækkun vörugjalda. Nú er það alveg ljóst miðað við fréttirnar að þessi vörugjöld eru ekki að fara að innheimtast. Þau eru ekki að fara að innheimtast af því að innflutningur á bílum og alls kyns ökutækjum, fjórhjólum og sexhjólum og öðru hefur aukist um mörg hundruð prósent. Við erum samt að halda þessu inni og ætlum að reyna að ná þessu. Ég tek undir með hv. þm. Sigríði Andersen: Þetta er veikasti hlekkurinn í fjárlögunum. Stöðugleikareglan er í raun fallin, þ.e. skattareglan. Við megum því búast við að jafnvel enn fleiri skattar verði hækkaðir í skattorminum sem fram undan er í næstu viku.