157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:11]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Frú forseti. Þegar þetta var fyrst kynnt var þetta dellufrumvarp. Þegar þetta var kynnt í annað skipti var þetta dellufrumvarp. Flestir sem tóku þátt í að reyna að keyra þetta mál áfram á þeim tíma hafa áttað sig, flestir en ekki alveg allir, en þetta er enn sama dellufrumvarpið. Þetta mun hækka vörugjöld úti á landi. Þetta mun skekkja samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem starfa úti á landi og þurfa að koma vöru sinni og þjónustu á markað. Þetta er algjörlega snargalið frumvarp, frú forseti, snargalið frumvarp.