157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:12]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Eins og komið hefur fram erum við að fjalla hér um að fella aukatekjur út af kílómetragjaldi af. Eins og staðan er í íslenskri ferðaþjónustu, í íslensku efnahagslífi — kostnaðurinn og áföllin dynja á landsbyggðinni og annað slíkt — þá er gjörsamlega galið að setja á kílómetragjald á sama tíma og vörugjöld eru snarhækkuð. Ég vil líka benda hæstv. ríkisstjórn, sem þykist alltaf ætla að hagræða en kemur ekki með eina tillögu, ekki eina útfærða hagræðingartillögu, á að þetta er líka hagræðingartillaga, að hætta við kílómetragjaldið. Báknið stækkar um 300 milljónir; beinn kostnaður við innheimtuna og framkvæmdir á þessu gjaldi er 300 milljónir. Afleiddur kostnaður er óreiknanlegur, hann er svo mikill; flækjustigið, aukakostnaðurinn og vesenið. Ég legg því til að hv. þingmenn samþykki þessa tillögu.