fjárlög 2026.
Forseti. Ég vil vekja athygli á því að við erum eina landið í heiminum sem ætlar að gera það með þessum hætti. Það eru nokkur lönd að skoða að fara í svona kílómetragjald, það er aðallega vegna rafmagnsbifreiða, og þau hafa gefið út að þau ætli að taka þau upp, byrja eftir einhver ár til að gefa einhvern fyrirsjáanleika og ætla að gera það yfir nokkurra ára tímabil. Hvað erum við að gera? Við ætlum að samþykkja þetta hér í desember og þetta á að taka gildi 1. janúar. Þið getið ímyndað ykkur hvort tölvukerfi og allt annað verði tilbúið. Þetta gengur ekki upp. Ég styð þessa tillögu.