fjárlög 2026.
Frú forseti. Eins og svo margt í skattahækkanaáformum ríkisstjórnarinnar er þetta ekki aðeins galið heldur ófullbúið. Þess vegna kemur það inn svo seint sem raun ber vitni, áformin um hækkun kílómetragjaldsins, sem breytingartillaga undir lokin. Samt er þetta ekki tilbúið enn þá. Samt vita menn ekki alveg hvernig þeir eiga að rökstyðja þetta og eru líklega að átta sig á því að þetta muni hafa heilmikil neikvæð áhrif og reynast hið flóknasta og versta mál á allan hátt. Eins og hv. þm. Þorgrímur Sigmundsson gat um hér áðan þá er þetta enn eitt gjalda- og skattahækkanamálið frá þessari ríkisstjórn sem bitnar hlutfallslega verst á landsbyggðinni. Maður fer að velta fyrir sér hvort það sé einhver undirliggjandi andúð á dreifðari byggðum landsins þegar maður sér samsetninguna af refsisköttum og gjöldum sem þessi ríkisstjórn ætlar að setja á íslenskan almenning. Ég styð því heils hugar þá tillögu sem hér er til að milda áfallið af því að sitja uppi með þessa ríkisstjórn.