157. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2025.

fjárlög 2026.

1. mál
[15:17]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það er holur hljómur í málflutningi hæstv. ríkisstjórnar að segjast ætla að berjast á móti hækkun verðbólgu og berjast við verðbólguna og standa fyrir því að lækka vexti fyrir heimilin í landinu. Nei, hér á að keyra allt í botn, alla skatta, allar krónutöluhækkanir og allt í botn. Ég veit ekki hvaða hagfræðingur fær það út að það vinni fyrir því að lækka verðbólguna í landinu. Nei, síður en svo, þetta mun líklega viðhalda hærri verðbólgu í landinu, viðhalda verðbólgustiginu. Þessi tillaga okkar er ein af þeim aðgerðum sem til þarf til að reyna að lækka verðbólguna í landinu með hagsmuni heimilanna og fyrirtækjanna í landinu í fyrirrúmi svo við getum loksins farið að sjá hér vaxtalækkanir. En nei, sleggjan er notuð öfugt, hún er notuð til að berja upp verðbólguna í landinu.